Valhöll kynnir: virkilega glæsilega og vel skipulagða 4 .herbergja 126,3 m2 endaíbúð með sérinngangi á tveimur hæðum ásamt geymslu í risi með glugga. Tvö salerni og sér þvottahús með glugga. Tvö sérmerkt bílastæði á lóð. Efri hæðin er að hluta til undir súð og eru þvi nýtanlegir fermetrar fleiri heldur en skráningin segir til um. Frábært og fjölskylduvæn staðsetning innan Grafarvogs og stutt er í skóla- leikskóla sundlaug og íþróttastarf. Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.isHeildarstærð eignarinnar samkvæmt þjóðskrá er 126,3 m2 sem skiptist þannig: íbúð á hæð 65,4 m2 2 .hæð 51,6 m2 og geymsla í risi 9,3 m2Skipulag eignar: Forstofa, sér þvottahús, hol, gestasalerni, eldhús, borðstofa og stofa með útgengi út á svalir. Timburstigi er á milli hæða, hol, þrjú rúmgóð svefnherbergi á efri hæð og stórt baðherbergi með baðkari og sturtu. Niðurdraganlegur stigi frá holi upp á risloft með þakglugga (fordæmi eru um uppsetnignu hringstiga upp í risloft).
Nánari lýsing 1.hæðar.Forstofa með flísalögðu gólfi og fatahengi.
Þvottahús er innaf af forstofu með góðum fataskáp og glugga. Borðplata, skolvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hol með harðparketi á gólfi.
Gestasnyrting með flísalögðu gólfi , falleg innrétting, upphengt salerni.
Eldhúsið er bjart og rúmgott með tveimur gluggum. Eldhúsinnrétting endurnýjuð að mestu með innbyggðum ísskáp ásamt frysti, innbyggðri uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, span helluborð með viftu yfir, harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og opin með góðum gluggum og útgengi á svalir í vestur. Harðparket á gólfi.
Nánari lýsing efri hæð.Hvítlakkaður timburstigi upp á efri hæð íbúðar.
Hjónaherbergið er rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með opnanlegum Veluxglugga, flísalagt gólf og veggir við hornbaðkar og í sturtuklefa. Handklæðaofn. Rúmgóð viðarinnrétting er á baðherbergi.
Barnaherbergi er rúmgott með fataskáp.
Barnaherbergi er rúmgott með þakglugga.
Risloft: Útdraganlegur stigi liggur upp á rúmgott risloft með þakglugga.
Tvö sérmerkt stæði er á sameiginlegu bílastæði.Nýlegar endurbætur (c.a. 2021-2022):- Eldhúsinnrétting endurnýjuð að mestum hluta.
- Öll tæki endurnýjuð, innbyggður ísskápur ásamt frysti, innbyggð uppþvottavél, helluborð, vifta og bakaraofn.
- Allar innuhurðar endurnýjaðar.
- Allt parket endurnýjað.
- Flísar á þvottahúsi og forstofu.
- Gestasalerni endurnýjað frá A til Ö
- Þvottahús endurnýjað.
- Nýlega hefur verið skipt um gler í gluggum á steyptum flötum hússins (ekki þakglugga).
Hér er um að ræða mjög fölskylduvæna og eftirsótta staðsetningu í Grafarvogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sund og aðra þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.