Fasteignaleitin
Skráð 15. júní 2026

Húsatóftir 1C og 1D

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-804
164.3 m2
4 Herb.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
516.738 kr./m2
Fasteignamat
72.450.000 kr.
Brunabótamat
75.100.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2201939
Landnúmer
221379
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Lélegt
Þak
Ekki vitað um vandamál
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Gera má ráð fyrir að fyrirhuguð breikkun vegar geti haft í för með sér að land Húsatófta 1E minnki að einhverju leyti í framtíðinni.
Gallar
Stór gluggi og svalahurð úr stofu er gott sem ónýtur!
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna til sölu Húsatóftir 1C og 1D í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Einstök eign með glæsilegu útsýni, landi og fjölbreyttum möguleikum.
Um er að ræða samtals tvö fastanúmer með íbúðarhúsi, landi og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum. 
Landið undir húsinu er skráð 1,2 hektarar og Húsatóftir 1C er skráð um 2 hektarar, samtals er landið því um 3,2 hektarar.
Ásett verð fyrir báðar eignirnar saman er 84,9 milljónir kr. 
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing;
Um er að ræða einstaklega fallega eign í grónu og friðsælu sveitarumhverfi þar sem náttúrufegurð, víðáttan og útsýnið setja sterkan svip á eignina. Frá húsinu og landinu er fallegt útsýni til fjalla, meðal annars til Heklu, Eyjafjallajökuls og nærliggjandi fjallgarða. Svæðið er rólegt og skjólgott og býður upp á einstaka möguleika fyrir þá sem vilja njóta sveitalífs, halda hesta eða þróa áfram búskap, ræktun eða aðra uppbyggingu.
Staðsetningin er afar góð þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Flúðir, Laugarás og Árnes eru í þægilegri akstursfjarlægð þar sem finna má verslun, skóla, þjónustu, veitingastaði og afþreyingu. Þá er sundlaug í Brautarholti í næsta nágrenni og svæðið allt þekkt fyrir náttúrufegurð og öflugt samfélag.

Húsatóftir 1C - Fasteignanúmer 220-1939
Um er að ræða steinsteypt einbýlishús byggt árið 2014, samtals 164,3 fm að stærð, staðsett á 1,2 hektara eignarlóð. Húsið er einangrað og klætt að utan og gólfhiti er í öllum rýmum nema geymslu.
Stórir gluggar og mikil lofthæð skapa bjart og opið rými þar sem náttúran fær að njóta sín til fulls inn í húsið.
Gengið er inn í húsið af sólpalli inn í rúmgóða forstofu. Þaðan er komið inn í stóra stofu og opið eldhús. Hæð til lofts er allt að 3,5 m. Stór gluggi er úr stofu í suðurátt með hurð sem gefur fallega tengingu út í garð og landið í kring.
Inn af eldhúsinu er sér þvottahús og geymsla við hliðina. Gengið er úr stofunni inn gang þar sem eru þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi ásamt baðherbergi. 
Við húsið er skjólgóður sólpallur og fallegur gróinn garður með trjágróðri sem skapar einstaka stemningu í kringum eignina. Ræktaðar hafa verið um 1.000 trjáplöntur sem mynda skjól og fallegt umhverfi.
Húsatóftir 1C eiga hlut í borholu (hitaveitu) sem sér mörgum býlum fyrir heitu vatni og hefur því nægan aðgang að fríu heitu vatni til húshitunar og almennrar notkunar.
Húsatóftir 1D: Samtals um 2 hektara landareign. Landið liggur að Húsatóftum 1C og hentar afar vel fyrir hestamennsku, smábúskap eða frekari æktun. 
Húsatóftir 1E: Samtals um 20,8 hektara landareign með miklum möguleikum.  Landið er fallegt með einstöku útsýni yfir nærliggjandi sveitir, fjöll og náttúru. Hér gefst einstakt tækifæri til frekari uppbyggingar, ræktunar eða annarrar nýtingar eftir þörfum kaupanda.  Verð fyrir Húsatóftir 1E er 34,9 millj.

Eignin í heild sinni býður upp á frábært tækifæri fyrir þá sem vilja njóta sveitalífs í fallegu umhverfi með landrými og fjölbreyttum möguleikum til framtíðar.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2364389
Lóðarmat
517.000 kr.
Fasteignamat samtals
517.000 kr.

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavellir 16
Bílskúr
Skoða eignina Laugavellir 16
Laugavellir 16
700 Egilsstaðir
161.7 m2
Einbýlishús
424
494 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Stórás 7
Bílskúr
Skoða eignina Stórás 7
Stórás 7
210 Garðabær
164.7 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
412
716 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 35
Skoða eignina Hringbraut 35
Hringbraut 35
220 Hafnarfjörður
172.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
715
636 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Grænamörk 2
Skoða eignina Grænamörk 2
Grænamörk 2
800 Selfoss
81.4 m2
Raðhús
211
810 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin