Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna einstaklega fallegt og vel staðsett 187,8fm, 6 herbergja einbýli á 3 hæðum með aukaíbúð í kjallara. Sérbílastæði fyrir framan húsið. Aukin lofthæð og fallegir gluggar eru á miðhæðinni sem gefur húsinu glæsilegt yfirbragð. Rúmgóð stofa með góðri tengingu við eldhús, útgengi út í garð með timburverönd og heitum potti. Þrjú svefnherbergi eru í rishæð ásamt baði. Rúmgóð útigeymsla er við innkeyrslu. Möguleiki á að breikka og lengja innkeyrslu til að fjölga bílastæðum á lóð. Aukaíbúð með sérinngang og sér viðarverönd að austanverðu húsinu. Hægt að leigja hana út sem 2ja herbergja íbúð eða sem 1 herbergja íbúð með eldhúsi, baðherbergi og sér þvottahúsi. Nýting aukaíbúðar einskorðast ekki eingöngu við að nýta sem útleigueiningu. Einnig m.a. hægt að nýta sem mjög góða aðstöðu fyrir unglinginn sem vill og þarf smá næði en þó stutt í foreldrana. Kjallarinn býður upp á afar fjölbreytta nýtingarmöguleika. Glæsileg eign á afar vinsælum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Stutt í fjölbreytta þjónustu nærþjónustu Vesturbæjarins, verslun og skóla á öllum stigum. Þá er miðbær Reykjavíkur og Grandinn í göngufjarlægð ásamt íþróttasvæði Reykjavíkurstóveldisins KR í Frostaskjóli. Stutt í fallegum göngu- og hjólaleiðum meðfram sjávarsíðunni.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is
Hér má sjá videó af eigninni
* Glæsilegt og vel viðhaldið hús
* 5 svefnherbergi í húsi, 3 í rishæð og 2 í kjallara (Ef kjallari er ekki nýttur sem aukaíbúð).
* Einstaklega falleg og björt rými - Hátt til lofts og falleg gluggasetning.
* Möguleiki á að nýta kjallara sem 2ja herbergja aukaíbúð eða sem 1 herbergja íbúð.
* Falleg viðarverönd með heitum potti (Hitaveitu)
* Frábær og einstök staðsetning í Vesturbæ Reykjavíkur
Húsið er byggt árið 1925 og stóð þá við Laugaveginn. Árið 1982 er húsið flutt yfir á Lágholtsveginn og sett á nýjan steyptan kjallara. Eru allar lagnir og rafmagn frá þeim tíma og einnig var húsið mikið endurnýjað.
Lóðin er eignarlóð. Mögulega hægt að sækja um leyfi fyrir 20m2 stækkun og til eru teikningar fyrir kvistum á SV hlið hússins.
Bílastæði er aftan við húsið á upphaflegum teikningum.Framkvæmdir frá 2016 - 2020:*
2016: - Íbúð í kjallara standsett. IKEA innrétting með uppþvottavél og keramíkhelluborði. Skipt var um einangrun og settar gifsplötur í loftið á milli hæða.
*
2017:
- Tveir gluggar
á efri hæð á SA hlið árið . Hægt er að opna báða glugga upp á gátt til að komast út (brunastigi geymdur undir rúmi í barnaherbergi).
*
2018: - Baðherbergi á efri hæð standsett. Sett upp upphengt klósett, sturtubaðkar, Kame innrétting og ítalskar flísar (frá Húsasmiðjunni). Flísarnar eru á gifsplötum og sérstök fúga var notuð til að koma í veg fyrir sprungumyndun vegna eðlilegra hreyfinga í timburhúsi.
* 2019: -
Allar innstungur og slökkvarar endurnýjaðir. LED dimmarar í stofu.
*
2020: - Skipt var um klæðningu og dúk á öllu húsinu og þaki árið og skipt um timbur þar sem þörf var á.
- Þrír gluggar á NA hlið endurnýjaðir (eldhús og baðherbergi).
- Nýr pallur og geymsluskúr ásamt því að svalir voru stækkaðar fram.
- Heitur pottur var fluttur inn á lóðina og rafmagnshitavír settur í lagnir.
- Skipt var um gler í flestum gluggum á miðhæð og risi.
- Skipt hefur verið um alla ofnakrana.
Nánari lýsing eignarinnar:Miðhæð: Forstofa - Eldhús - Geymsla - Stofa: Aukin lofthæð, fallegir gluggar og hvítlökkuð upprunaleg gólfborð á aðalhæðinni gefa rýmunum glæsileika og karakter. Forstofa: Rúmgóð forstofa með flísum á gólfi og veggfóðri á veggjum. Þaðan er stigi upp á rishæð og niður í kjallara.
Geymsla: Inn af forstofu. Möguleiki á að útbúa gestasalerni.
Eldhús: Samliggjandi við stofu. Falleg hvít innrétting með eyju og vönduðum tækjum. Borðkrókur.
Stofa: Rúmgóð stofa og borðstofa með útgengi út á svalir og viðarverönd með heitum potti.
Aukin lofthæð, fallegir gluggar og upprunaleg gólfborð á aðalhæðinni gefa rýmunum glæsileika og karakter. Rishæð: Þrjú svefnherbergi - Baðherbergi:Gangur: Gengið inn í herbergin þrjú ásamt baðherbergi. Upprunaleg gólfborð á gólfi.
Þrjú svefnherbergi: Rúmgóð herbergi undir súð. Upprunaleg gólfborð á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað. Upphengt klósett, Kame innrétting með skúffum, stórum postulínsvaski og stórum spegli. Baðkar með sturtu og sturtugleri. Flísar á gifsplötum.
Geymslurými: Yfir hluta af rishæð og undir súð.
Kjallari: Þvottahús - Herbergi - köld geymsla:Þvottahús: Undir tröppum með skolvaski.
Herbergi: Mjög rúmgott herbergi. Hægt að tengja við og nýta með aukaíbúð ef vilji er til að stækka hana. Hægt að ganga úr herbergi inn í aukaíbúð.
Köld geymsla: Nokkuð rúmgóð og með rafmagni.
Aukaíbúð: Sérinngangur - Forstofa - Þvottahús - Herbergi - Eldhús - Baðherbergi - Sérverönd:Sérinngangur: Gengið inn í sér garð vestan megin við hús. Sérinngangur.
Forstofa: Flísar á gólfi. Þvottahús inn af forstofu.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: IKEA innrétting með uppþvottavél og helluborði. Borðkrókur. Flísar á gólfi og vegg við eldhúsinnréttingu.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt klósett, sturta, vaskur og upphengdur speglaskápur.
Garður: Sérgarður, viðarverönd.
Íbúð í kjallara var standsett árið 2016.Útisvæði:
Garður: Stórt og fallegt útisvæði með viðarverönd að hluta og tyrft að hluta. Hitaveitu heitur pottur.
Geymsluskúr: Rúmgóður geymsluskúr með rafmagni. Pláss fyrir nokkur hjól og einfalt að koma fyrir hleðslu fyrir rafmagnsbíl.
Barnahús: Rúmgott barnahús sem einnig má nota sem geymslu fyrir garðverkfæri.
Glæsilegt hús með aukaíbúð á mjög góðum, rólegum og fjölskylduvænum stað í Vesturbæ Reykjavíkur.Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661-6021, tölvupóstur hreidar@eignamidlun.is