Opið hús:18. feb. kl 18:00-18:30
Skráð 15. feb. 2026

Arnarás 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
122.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
812.856 kr./m2
Fasteignamat
92.300.000 kr.
Brunabótamat
64.300.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2000
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2249155
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Yfirfarnir
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Arnarás 19 Garðabæ - Sérinngangur / möguleiki á fjórum svefnherbergjum / sérafnotareitur til suðurs

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og sjarmerandi 122,9 fermetra 4ra - 5 herbergja endaíbúð á 1. hæð með sérinngangi við Arnarás 19 í Garðabæ. Í dag eru þrjú svefnherbergi í íbúðinni en möguleiki er að bæta við fjórða svefnherbergi í stað sjónvarpsrýmis. Útgengi úr stofu á sérafnotaflöt til suðurs og vesturs.  Afar fallegt útsýni er frá íbúðinni út á sundin, að Bessastöðum, Snæfellsjökli, Snæfellsnesi, Seltjarnarnesi og víðar. Gott þvottaherbergi er staðsett inn af íbúð og rúmgott búr inn af eldhúsi. Geymsla er staðsett á geymslugangi í sameign og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Húsið er byggt árið 2000 með fallega frágenginni lóð. Hellulagðrar stéttir fyrir framan hús með snjóbræðslu. Malbikuð bílastæði á lóð. Tyrfðar flatir og afar fallegur trjágróður. Búið er að setja upp nokkra rafhleðslustaura við bílastæði á lóð. Sérafnotaflötur er sérstaklega gróin og fallegur og snýr til suðurs og vesturs. Um er að ræða endahús í endanum á lokuðum botnlanga og því mikið næði í kringum íbúð og sérafnotaflöt íbúðar.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi við Ásanna í Garðabæ. Stutt í alla verslun og þjónustu. Íþróttasvæði Stjörnunnar í næsta nágrenni og frábærar hjóla- og gönguleiðir við sjóinn og gegnum hraunið sem tengist friðlandinu í Gálgahrauni. Stutt í leikskóla (Ásar) og grunnskóla og framhaldsskóla. Sundlaug í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og fatahengi.
Hol: Með flísum á gólfi og góðum skápum.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með stórri eldhúseyju og granít á borðum. Undirfelldur vaskur, innbyggð uppþvottavél og keramik helluborð. Niðurtekið loft með innfelldri lýsingu í loftum.
Búr: Er staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi og hillur.
Stofa: Með flísum á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á sérafnotaflöt til suðurs.
Sérafnotaflötur: Er staðsettur í bakgarði hússins til suðurs og vesturs. Sérafnotaflötur er skjólgóður og afgirtur að hluta. Virkilega fallegur trjágróður umhverfis sérafnotaflöt. 
Sjónvarpsstofa: Er staðsett inn af stofu/eldhúsi. Einfalt er að breyta sjónvarpsstofu í fjórða svefnherbergið (sjá teikningu í myndum). Flísar á gólfi og glugga til suðurs og vesturs. Afar glæsilegt útsýni úr á sundin, að Snæfellsjökli, Snæfellsnesi og víðar.
Hjónaherbergi: Er rúmgott og með parketi á gólfi. Gluggar til norðurs og gott skápapláss.
Svefnherbergi II: Er rúmgott og með parketi á gólfi. Gluggar til norðurs og skápar.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og glerþili. Upphengt salerni, falleg innrétting við vask, handklæðaofn og skápar.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, vinnuborði, tengi fyrir þvottavél/þurrkara, vaski, hillum og útloftun.

Geymsla: Er staðsett inn af geymslugangi í sameign hússins.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við geymslugang í sameign hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorraholt 1C
Bílastæði
Skoða eignina Þorraholt 1C
Þorraholt 1C
210 Garðabær
102.6 m2
Fjölbýlishús
413
969 þ.kr./m2
99.400.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 (107)
Bílastæði
Opið hús:19. feb. kl 17:00-17:30
Vetrarbraut 2 (107)
210 Garðabær
99.7 m2
Fjölbýlishús
312
992 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina 17. Júnítorg 1 (103)
Bílastæði
17. Júnítorg 1 (103)
210 Garðabær
119.8 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 39
Opið hús:17. feb. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Holtsvegur 39
Holtsvegur 39
210 Garðabær
111 m2
Fjölbýlishús
413
871 þ.kr./m2
96.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin