Fasteignaleitin
Opið hús:08. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 5. okt. 2026

Hraunbær 7

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
165.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
135.900.000 kr.
Fermetraverð
822.142 kr./m2
Fasteignamat
110.150.000 kr.
Brunabótamat
91.310.000 kr.
Mynd af Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2044397
Landnúmer
111071
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sjá lýsingu
Raflagnir
Sjá lýsingu
Frárennslislagnir
Sjá lýsingu
Gluggar / Gler
Sjá lýsingu
Þak
Sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, kynna rúmgott og vel skipulagt raðhús við Hraunbæ 7 í Reykjavík. Eignin er samtals 165,3 fm, þar af er 22 fm bílskúr. Húsið býður upp á fjögur svefnherbergi, björt og rúmgóð alrými og einstaklega skemmtilega tengingu við skjólgóðan og sólríkan pall með heitum potti.
*** Hér er hægt að kíkja í 3D-heimsókn ***
Upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 820-0490 eða á netfanginu gudrun@remax.is

Frekari upplýsingar um eignina:
Komið er inn í forstofu, sem leiðir inn í bjart og opið alrými hússins.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með stórum gluggum sem hleypa góðri dagsbirtu inn. Rýmin tengjast vel saman og mynda fallega og opna heild. Úr stofunni er gott útsýni yfir pallinn og garðinn og skemmtileg tenging er á milli inni- og útirýmis.
Eldhúsið er fallegt bjart, vel skipulagt með góðu skápa og vinnuplássi. Ljós innrétting í bland við dekkri efri skápa og granít borðplötur gefa eldhúsinu fallegt yfirbragð.
Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús og geymsla með útgengi út að framan.
Í eigninni eru fjögur svefnherbergi, sem gerir eignina sérstaklega hentuga fyrir fjölskyldufólk. Léttur veggur er á milli tveggja herbergjanna og því býður skipulagið upp á ákveðinn sveigjanleika eftir þörfum.
Baðherbergi er með upphengdu salerni og sturtu auk innréttingar. Þetta rými var tekið í gegn fyrir um 10 árum. Að auki er gestasalerni inn af forstofu.
Geymsla fylgir eigninni, þar er lagnagrindin sem hefur verið endurnýjuð að hluta. Þar er einnig stýring á heita pottinum.
Útiaðstaðan: Við húsið er stór, skjólgóður og sólríkur, lokaður pallur með heitum potti. Hér er einstaklega góð aðstaða til útiveru. Fallegur gróður umlykur svæðið og gefur því hlýlegt yfirbragð.
Eigninni fylgir 22 fm bílskúr með nýlegri bílskúrshurð, sem nýtist vel bæði fyrir bifreið og sem aukið geymslu- eða vinnurými.
***Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni: Fyrir um 10 árum voru meðal annars gólfefni endurnýjuð, ný eldhúsinnrétting sett upp og baðherbergi tekið í gegn. Rafmagn hefur verið endurnýjað og neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Í kringum 2016 voru frárennslislagnir myndaðar og voru þá í lagi.***
Viðhald: Á næstu árum má gera ráð fyrir að þörf sé á að mála þak, ásamt endurnýjun á þakkanti.
Hraunbær er rótgróið og fjölskylduvænt hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, íþróttastarf og aðra helstu þjónustu. Þá eru fjölbreytt útivistarsvæði og góðar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni.

Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 820-0490 eða á netfanginu gudrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/09/201640.550.000 kr.47.500.000 kr.165.3 m2287.356 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1972
22 m2
Fasteignanúmer
2044397
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.960.000 kr.

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Norðurbyggð 9b
Á einni hæð
Skoða eignina Norðurbyggð 9b
Norðurbyggð 9b
815 Þorlákshöfn
150 m2
Raðhús
413
547 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Opið hús:08. okt. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
157,5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45
Opið hús:08. okt. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Hjallabraut 45
Hjallabraut 45
220 Hafnarfjörður
159,7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Staðarborg 26B
Skoða eignina Staðarborg 26B
Staðarborg 26B
190 Vogar
129,2 m2
Raðhús
524
660 þ.kr./m2
85.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin