Falleg og björt útsýnisíbúð með bílskúrsrétti við Móabarð 18 í HafnarfirðiUm er að ræða fallega og bjarta 3–4 herbergja íbúð á tveimur hæðum í góðu tvíbýlishúsi við Móabarð 18 í Hafnarfirði.
Eignin er samtals skráð 156,3 fm, þar af er íbúðarhlutinn 125,4 fm og bílskúrsréttur 30,9 fm.
Íbúðin býður upp á gott og fjölskylduvænt skipulag, fallegt útsýni og suðvestursvalir þar sem hægt er að njóta sólar og útiveru.
Eignin hefur fengið ýmsar endurbætur á árunum 2021–2026.
Nánari lýsing:Komið er inn í flísalagða
forstofu með gólfhita. Inn af forstofu er gott
þvottahús með nýlegri innréttingu,
aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, bekk og vaski. Opnanlegur gluggi er í rýminu. Undir stiga er góð geymsla.
Stiginn upp á efri hæð er teppalagður og stigauppgangan björt með góðum glugga.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, góðu skápaplássi og aðstöðu fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp. Þar er einnig góður borðkrókur.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með fallegu útsýni. Úr stofu er gengið út á suðvestursvalir.
Hjónaherbergi og barnaherbergi með parketi á gólfum, fataskápur í hjónaherbergi. Þá er
þriðja herbergið, sem einnig hentar vel sem barnaherbergi eða vinnuherbergi, með glugga og parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með sturtubaðkari, upphengdu salerni og góðri innréttingu. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Geymsluloft er yfir allri íbúðinni og veitir gott aukageymslupláss.
Aftan við húsið er
30,9 fm bílskúrsréttur. Á bílaplaninu er jafnframt hleðslustöð fyrir rafbíl, en stöðin fylgir ekki með við sölu.
Framkvæmdir og endurbætur 2021–2026:- Forstofa og þvottahús flísalögð og gólfhiti settur.
- Ný innrétting í þvottahús.
- Rafmagn endurnýjað að hluta.
- Þriggja fasa rafmagn lagt út að bílastæði aftan við húsið og hleðslustöð sett upp.
- Stigi milli hæða teppalagður.
- Gluggar yfirfarnir.
- Pípulagnir uppfærðar að hluta. Hluti lagna á efri hæð endurnýjaður og aðrar lagnir yfirfarnar af fyrri eiganda.
- Bíslag lagfært, skipt um gluggalista og gler sem þurfti, málað að innan og utan.
- Þvottahús skipt um gler sem þurfti.
Staðsetning:Staðsetningin er einstaklega góð í rólegri götu í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Hafnarfirði. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og miðbæ Hafnarfjarðar.
Falleg og björt fjölskyldueign með góðu skipulagi, miklu útsýni, suðvestursvölum og bílskúrsrétti á eftirsóttum stað í Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is