Fasteignaleitin
Opið hús:12. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 7. júlí 2026

Hólavað 63

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
168.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
149.900.000 kr.
Fermetraverð
887.507 kr./m2
Fasteignamat
140.500.000 kr.
Brunabótamat
94.350.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2293776
Landnúmer
199079
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Frá því að húsið var byggt
Þak
Frá því að húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Nýtt á skrá! Hólavað 63 í Reykjavík - Glæsilegt 5 herb. endaraðhús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt 5 herbergja endaraðhús á einni hæð á fjölskylduvænum stað við Hólavað 63 í Reykjavík. Húsið er alls 168,9 fermetrar að stærð og þar af 26,1 fermetra bílskúr sem er búið að breyta að hluta í fjórða svefnherbergið. Gólfhiti er í öllu húsinu og mikil lofthæð yfir stofum og eldhúsi. Útgengi úr stofu annars vegar á rúmgóða hellulagða afgirta verönd til suðurs og hins vegar í tyrfðan bakgarð hússins. Hellulögð stétt/bílastæði fyrir framan hús með snjóbræðslu. Einnig eru sameiginleg gestastæði í götunni á móts við húsið.

Húsið skiptist í fjögur svefnherbergi, opið alrými sem skiptist í eldhús, borðstofu og stofu, gestasnyrtingu, baðherbergi, sjónvarpsrými, þvottaherbergi og bílskúr (sem er í dag fjórða svefnherbergið og geymsla að hluta). Stór afgirt hellulögð verönd til suðurs og tyrfð baklóð til norðurs. Rúmgott risloft/geymsluloft sem er u.þ.b. 20 fermetrar að grunnfleti (ekki full lofthæð).


Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað í Norðlingaholti í Reykjavík þaðan sem stutt er í skóla og leikskóla. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni (M.a. Rauðavatn, Heiðmörk, Hólmsá og Elliðavatn). Matvörubúð, apótek og bensínstöð innan hverfis.

Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi og veggjum. Upphengt salerni, vaskur og gluggi til suðurs.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá InnX, granít steini á borðum og undirfelldum vaski. Stál Electrolux bakaraofn, spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Mikil lofthæð er yfir eldhúsi með innfelldri lýsingu í loftum. Flísar á milli skápa og gluggar til suðurs.
Stofa: Er stór, með parketi á gólfi og mikilli lofthæð með innfelldri lýsingu í loftum. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs og norðurs. Útgengi á afgirta hellulagða verönd til suðurs og í tyrfða bakgarð hússins til norðurs. 
Sjónvarpsstofa: Er opin að hluta við stofu. Parket á gólfi og aukin lofthæð.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Falleg og góð innrétting við vask með steini á borðum. Flísalögð sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi til vesturs.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi. Góð innrétting, tenglar fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi til vesturs. Gengið er upp í risloft/geymsluloft frá þvottaherbergi.
Geymsluloft: Er staðsett fyrir ofan þvottaherbergi. Fellistigi frá þvottaherbergi. Ekki er full lofthæð og er grunnflötur u.þ.b. 20 fermetrar.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með parketi á gólfi og skápum. Gluggar til norðurs og útgengi á baklóð.
Svefnherbergi II: Er stórt, með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi IV: Er stórt og var bílskúr nýttur að hluta fyrir herbergi. Flísar á gólfi, skápar og gluggi til vesturs.
Geymsla: Er huti af bílskúr. Sérinngangur að framanverðu. Flísar á gólfi.

Bílskúr: Er 26,1 fermetrar að stærð og er nýttur í dag sem svefnherbergi IV og geymsla sbr. lýsing hér að ofan.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/10/200722.475.000 kr.39.000.000 kr.168.9 m2230.905 kr.
08/05/200722.475.000 kr.38.000.000 kr.168.9 m2224.985 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2007
26.1 m2
Fasteignanúmer
2293776
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.100.000 kr.

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparlaut 26
Bílastæði
Opið hús:07. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Asparlaut 26
Asparlaut 26
230 Reykjanesbær
164.9 m2
Fjölbýlishús
524
603 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 24
Bílastæði
Opið hús:07. júlí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Asparlaut 24
Asparlaut 24
230 Reykjanesbær
161.9 m2
Fjölbýlishús
524
597 þ.kr./m2
96.600.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Opið hús:09. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 45A
Hjallabraut 45A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47
Opið hús:09. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47
Hjallabraut 47
220 Hafnarfjörður
157.5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin