Fasteignaleitin
Skráð 19. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Kumlamýri 10

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
205 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
167.900.000 kr.
Fermetraverð
819.024 kr./m2
Fasteignamat
15.600.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Magnús Már Lúðvíksson
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2521879
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypa
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
1 - Samþykkt
Magnús Már Lúðvíksson Löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallegt og vel skipulagt 205,0 fm 6 herbergja parhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í nýju og spennandi hverfi á Álftanesi.

Verðið miðast við fullbúið á byggingarstigi 4, en möguleiki að kaupa á byggingarstigi 3, tilbúið til innréttinga eða eftir frekara samkomulagi.
Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að innan og klætt að utan.  

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Anddyri, þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, sjónvarpsstofu, stofa/borðstofu, eldhús, bílskúr og þvottahús.

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

// Aukin lofthæð
// Gólfsíðir gluggar
// Innbyggður bílskúr
// Gólfhiti
// Arinn í stofu
// Rúmgott alrými
// Vandaðar innréttingar
// Garður snýr vel að sólu
// 3 svefnherbergi + 3 Stofur + 3 Baðherbergi


Nánari lýsing:
Neðri hæð: 143,9 fm                                    
Anddyri: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Mjög gott skápa- og borðplass, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, undirlímdur vaskur, eyja með spanhelluborði og innfelldum gufugleypi. Sætispláss við eyju.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, innrétting undur handlaug, upphengt salerni, sturta, útgengt út timburverönd við heitan pott.
Þvottahús: Flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa: Opin og björt, Arinn, útgengt um rennihurð á timburverönd með heitum potti. 
Borðstofa: Opin og björt, tengir saman eldhús og stofu.
Hjónasvíta: (26,5 fm) Baðherbergi: (6,8 fm) Flísar á gólfi, innrétting undir handlaug, upphengt salerni, sturta og gluggi. Fataherbergi: (7,2 fm) Gott skápapláss Herbergi: (12,5 fm)
Bílskúr/geymsla: Innangengt úr íbúð, steypt gólf.
Garður: Timburverönd að hluta ásamt heitum pott, sjá teikningar.

Efri hæð: 60,6 fm, gólfflötur stærri.
Sjónvarpsstofa: Myndar miðrými milli svefnherbergja og baðherbergis.
Herbergi: (17,1 fm) Mjög rúmgott, fataskápur. 
Herbergi: (10,4 fm) Fataskápur
Baðherbergi: Flísar á gólfi, innrétting undir handlaug, upphengt salerni, sturta, þakgluggi sem gefur fallega birtu í rýmið.

Útveggir: Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að innan.
Gluggar: ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri.
Þak: Þak er báruklætt timburvirki
Lóðin: Lóðum verður skilað grófjöfnuðum.
Hitakerfi: Gólfhitakerfi er í húsunum í bland við ofnakerfi.
Innveggir: Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslustein. Veggir og loft innan húsa eru spartlaðir og málaðir.
Innréttingar: Í eldhúsi og á baði ásamt fataskápum eru frá Birninum innréttingar. Skápahurðir eru með hvítar eða gráar að lit,
Gólfefni: Húsum verður skilað fullbúnum án gólfefna. Gólf á baðherbergjum og í þvottahúsum eru flísalögð
Eldhústæki: skilast með tækjum og búnaði frá AEG, spanhelluborði, blástursofni innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Háfur eru innbyggður í helluborði í eyju.

Frekari upplýsingar um frágang hússins má finna í skilalýsingu seljanda.

Byggingaraðili: Atlas Verktakar ehf
Arkitekt: Teikna teiknistofu arkitekta
Raflagna- og lýsingarhönnun: Liska
Lagnahönnun: Verkfræðistofan Vektor ehf

Umhverfið:
Kumlamýri er ný gata á Álftanesi. Hún liggur í suðurátt frá Suðurnesvegi og frá henni kvíslast fimm botnlangar. Við hvern botnalanga standa fjögur parhús með alls átta íbúðareiningum með sameiginlegu götu-og íverusvæði í miðju. 

Megin hugmynd deiliskipulagsins fyrir svæðið er að viðhalda, eftir því sem verða má, því búsetulandslagi sem einkennt hefur Álftanes. Því er leitast við að húsin myndi óreglulegar þyrpingar sem umlykja sameiginleg aðkomusvæði í stað þess að þau myndi hefðbundna götumynd. Nýja hverfið liggur þétt að grónu hverfi og er því stutt í alla helstu þjónustu, svo sem skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og golfvöll. Þá er fallegt útivistarsvæði allt um kring.

Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. 
Kaupandi greiðir 0,8% af fasteignamati sem sýslumaður áæltar fyrir kaupsamning.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
24 m2
Fasteignanúmer
2521879
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
1 - Samþykkt

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kumlamýri 2
3D Sýn
Skoða eignina Kumlamýri 2
Kumlamýri 2
225 Garðabær
205 m2
Parhús
524
824 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Kumlamýri 12
Skoða eignina Kumlamýri 12
Kumlamýri 12
225 Garðabær
195.6 m2
Parhús
634
821 þ.kr./m2
160.500.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 6 - 406
Bílastæði
Opið hús:24. nóv. kl 17:00-17:30
Hafnarbraut 6 - 406
200 Kópavogur
168.3 m2
Fjölbýlishús
624
921 þ.kr./m2
154.990.000 kr.
Skoða eignina Kinnargata 92 íb. 305
Bílastæði
Kinnargata 92 íb. 305
210 Garðabær
147.6 m2
Fjölbýlishús
413
1083 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin