Lögheimili eignamiðlun kynnir góða 3ja til 4ra herb., íbúð, á 2. hæð. Eignin er samtals 76,9 fm. að meðtöldu herbergi í kjallara. Frábær staðsetning við Fossvogsdalinn. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttafélag, góðar gönguleiðir og fleira.
Endurnýjað og viðgert að sögn seljenda:
Eitt ár er síðan íbúðin var máluð. Nýleg blöndunartæki eru í baðherbergi. Nýlegt gler og opnanlegt fag er í barnaherbergi.
Nánari upplýsingar veitir:
Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is
Nánari lýsing: Anddyri/hol er með fataskáp og opið inn í eldhús og stofu. Björt stofa/borðstofa er með útgengt á suðursvalir. Í eldhúsi er innrétting og borðkrókur. Í baðherbergi er baðkar með sturtustöng og opnanlegur gluggi. Hjónaherbergi er með lausum fataskáp. Barnaherbergi. Plastparket er á gólfum í íbúð, nema á baðherbergi, eldhúsi og herbergjum í íbúð þar sem er dúkur. Í kjallara er föndurherbergi með máluðu gólfi, sameiginlegu aðgengi að snyrtingu og rúmgóðri sérgeymslu. Einnig er í kjallara sameigninlegt þvottaherbergi og vagna- og hjólageymsla.
Annað: Húsfélag Furugrundar 75 stefnir að framkvæmdum utanhúss skv. húsfundargerð dags. 08.07.2024 og ástandsskýrslu Verkþjónustunnar dags. 22.06.2024. Ekki er starfandi heildar húsfélag með samliggjandi húsi, Furugrund 77 og skv. aðalfundargerð F. 75 dags. 08.01.2024 hefur húsélag F. 77 ekki tekið undir að taka þátt í t.d. úttektinni. Skv. fasteignayfirliti HMS er íbúð á hæð 68,5 fm. og herbergi í kjallara 8,4 fm., eða samtals 76,9 fm.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.