ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Bárusker 4B, 245 Sandgerði, birt stærð 78.6 fm. Bókið skoðun, sýnum samdægurs!Um er að ræða fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og tveimur svefnherbergjum. Eldhús og stofa mynda opið og bjart alrými með gólfsíðum gluggum. Úr stofu er gengið út á timburverönd með skjólveggjum. Gólfhiti er í íbúðinni og henni fylgir sérgeymsla. Íbúðin er
- Laus við kaupsamning
- Sérinngangur
- Timburverönd með skjólveggjum, 19,7 m² sérafnotaflötur.
- Gólfhiti
- Sérgeymsla
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.isNánari lýsing eignarAnddyri: Flísar á gólfi og skápar við inngang.
Eldhús: Í opnu alrými með stofu. Innréttingin er að mestu með dökkri viðaráferð, með hvítum efri skápum og ljósri borðplötu. Bakarofn er í vinnuhæð, auk helluborðs og háfs. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi alrými við eldhús með gólfsíðum gluggum. Úr stofu er gengið út á timburverönd.
Svefnherbergin eru tvö, Í því stærra eru fataskápar.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er innrétting með vaski, upphengt salerni og opin sturta. Á baðherberginu er einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er 2,9 fm
Húsið er tveggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með 11 íbúðum. Samkvæmt byggingarlýsingu eru útveggir einangraðir að utan og klæddir bárujárni og sléttri málmklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.