Fasteignaleitin
Skráð 18. sept. 2024

Kjarralda 6 B

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Hella-850
234.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.300.000 kr.
Fermetraverð
316.709 kr./m2
Fasteignamat
36.400.000 kr.
Mynd af Ólafur Björn Blöndal
Ólafur Björn Blöndal
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2524160
Landnúmer
232481
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala, Ólafur B. Blöndal og Lilja Hrafnberg kynna:
SÉRLEGA VANDAÐ 4RA HERBERGJA RAÐHÚS Í BYGGINGU Á EINNI HÆÐ ÁSAMT BÍLSKÚR. EIGNIN SEM ER Í HEILDINA SKRÁÐ 130 FM SKIPTIST Í FORSTOFU, ELDHÚS/ STOFU/ BORÐSTOFU SEM FLÆÐA SAMAN Í OPNU ALRÝMI MEÐ ÚTGENGI Á VERÖND, ÞRJÚ SVEFNHERBERGI, BAÐHERBERGI, ÞVOTTAHÚS, GEYMSLU OG 25,4 FM BÍLSKÚR. LÚXUSEIGN MEÐ GÓLFHITA OG UPPTEKNUM LOFTUM. HÚSIÐ AFHENDIST EFTIR SAMKOMULAGI, FULLBÚIÐ AÐ INNAN (ÁN GÓLFEFNA) SEM UTAN (BST.4). LÓÐ ÞÖKULÖGÐ, PALLUR MEÐ SKJÓLVEGG OG BÍLAPLAN FRÁGENGIÐ MEÐ DRENMÖL.

Nánari upplýsingar veita: Ólafur B. Blöndal Löggiltur fasteignasali í síma 6900811, olafur@gimli.is og Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, lilja@gimli.is 

Sjá myndband með þrívíddarteikningum af eigninni

NÁNARI LÝSING:
Húsið er byggt úr timbri en sökklar og gólfplata er steypt. Útveggir eru klæddir að utan með báruáli. Stölluð klæðning er á þaki og þakkantur er klæddur furupanil. Gluggar og hurðir eru úr timbri klæddir með áli. Útiljós er í útvegg við aðalinngang og við hurð útá pall. Tvö ídráttarrör eru út í garð, t.d fyrir pott og rafmagn. Gert er ráð fyrir rafbílahleðslu.
Frágangur innanhúss:
Gólf er rykbundið nema á baðherbergi sem er flísalagt. Útveggir og innveggir  klæddir með OSB sem innra lag og gipsplötum sem ytra lag. Í baðherbergi eru veggir við sturtu flísalagðir. Aðrir veggir er málaðir með votrýmismálningu. Allir veggir eru fullmálaðir. Loft, önnur en í baðherbergi, eru klædd með loftaþiljum. Í baðherbergi er loft klætt með rakaþolnu gipsi, full málað. Fráveitulagnir eru full frágengnar og þrifatæki uppsett og tengd. Neysluvatnslagnir er tengdar við stofninntak, fullgerðar og frágengnar að tækjum. Gólfhitakerfi er fullgert og frágengið með hitastýringum. Eldhúsinnrétting er uppsett og fullfrágengin með helluborði, ofni og hólfi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Fataskápar eru uppsettir og frágengnir í öllum svefnherbergjum. Þvottahúsinnrétting er uppsett og fullfrágengin með blöndunartækjum. Fataskápur í forstofu er uppsettur og frágengin. Innrétting í baðherbergi er uppsett og fullfrágengin með blöndunartækjum. Innréttingar er frá Voke3, innhurðir hvítar frá Byko og tæki frá AEG/Siemens.
Byggingaraðili er Straumar byggingafélag.

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2023
104.6 m2
Fasteignanúmer
2524160
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
29.960.000 kr.
Lóðarmat
6.440.000 kr.
Fasteignamat samtals
36.400.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2023
25.4 m2
Fasteignanúmer
2524160
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 7
Skoða eignina Hringhamar 7
Hringhamar 7
221 Hafnarfjörður
111.4 m2
Fjölbýlishús
43
708 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 5 íb. 202
Hringhamar 5 íb. 202
221 Hafnarfjörður
104.9 m2
Fjölbýlishús
413
758 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37
Bílastæði
Skoða eignina Hringhamar 37
Hringhamar 37
221 Hafnarfjörður
90.6 m2
Fjölbýlishús
312
827 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 43
Bílastæði
Skoða eignina Holtsvegur 43
Holtsvegur 43
210 Garðabær
79.5 m2
Fjölbýlishús
211
942 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin