Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð til sölu í lyftuhúsi að Þangbakka 10, Reykjavík. Íbúðin er á annarri hæð og er alls 83,4 fm, þar af er sérgeymsla í sameign 7,4 fm. Útgengi úr eldhúsi á mjög stórar suðursvalir meðfram allri íbúðinni. Nýlegir ofnar í allri íbúðinni og nýlega búið að endurnýja lyftu. Frábærlega vel staðsett íbúð í Mjóddinni, verslun og þjónusta í næsta nágrenni. Þá er útivistarparadísin Elliðaárdalurinn í næsta nágrenni ásamt góðum göngu- og hjólastígum. Örstutt á stofnbrautir.
Nánari lýsing Gengið er inn um sameiginlegan inngang á suðurhlið hússins. Þar er góð aðkoma með stóru anddyri, rafstýrðum útihurðum og nýlegu myndavéla- og dyrasímakerfi. Íbúðin er á 2. hæð merkt 2-A
Inngangur/hol með skáp og parekti á gólfi. Eldhús með eldri innréttingu, borðkrók og útgengi á stórar suðursvalir. Nýleg eldavél. Parket á gólfi Stofa björt og rúmgóð með stórum gluggum og parketi á gólfi. Tvö herbergi annað stærra með góðum skápum meðfram einum veggnum og hitt minna. Parket á gólfum. Baðherbergi er með baðkari/sturtu, flísalagt í hólf og gólf. Sameiginlegt þvottahús á hæðinni fyrir allar íbúðir 2. hæðarinnar. Í sameign er sérgeymsla íbúðarinnar auk þess sem snyrtileg vagna- og hjólageymsla er aðgengileg á vinstri hönd við inngang í húsið.
Á jarðhæð hússins eru einnig rými sem húsfélagið leigir út og ganga allar tekjur af leigunni inn í hússjóð. Íbúðin er staðsett í húsi við hliðina á verslunarmiðstöðinni Mjódd og er gönguleiðin þar á milli með snjóbræðslukerfi sem tryggir gott aðgengi allt árið um kring.
Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141, eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.