LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:Virkilega fallega, nýlega 2ja herbergja íbúð á 4. og efstu hæð með svölum með miklu útsýni í góðu fjölbýlishúsi með lyftu við Brautarholt 6 í Reykjavík. Bílastæði eru sameiginleg á lóð hússins.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@landmark.is Eignina er ekki hægt að skoða fyrr en eftir 12. september.Húsið er skráð árið 1958 en var tekið í gegn frá árinu 2017 þar sem húsið var endurnýjað og skrifstofuhúsnæði sem var á 4. hæð hússins var breytt í íbúðir. Er því íbúðin frá því 2017/2018 - gluggar, þak, útveggir, rafmagn, lagnir og annað. Húsið er staðsett í grónu hverfi, rétt ofan við miðbæinn, í nálægð við alla verslun og þjónustu og aðra menningu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Eignin er skráð 41,4 fm skv HMS.
Nánari lýsing eignar:Inngangur í íbúð/forstofa með skápum og parket á gólfi.
Stofa og eldhús er í björtu og opnu alrými með parket á gólfi, útgengt á suðursvalir með fallegu útsýni.
Eldhús með fallegri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél, keramik helluborð og bakaraofn, parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottaherbergi er staðsett á hæðinni, sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Geymslurými er staðsett á hæðinni, geymsluskápur fyrir hverja íbúð.
Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla er staðsett í porti á bakvið húsið.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@landmark.is Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat