Fasteignaleitin
Skráð 30. apríl 2026

Hlíðarmói 7

Nýbygging • RaðhúsNorðurland/Akureyri-603
145.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
114.531.500 kr.
Fermetraverð
785.000 kr./m2
Fasteignamat
12.300.000 kr.
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2541408
Landnúmer
236958
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýtt 2026
Raflagnir
Nýtt 2026
Frárennslislagnir
Nýtt 2026
Gluggar / Gler
Nýtt 2026
Þak
Nýtt 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestur-Verönd
Lóð
19,47
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Kasa fasteignir 461-2010.

Hlíðarmói 7 - Glæsileg 4 herbergja 145,9 fm raðhúsaíbúð með bílskúr í byggingu í Móahverf - Íbúðin selst fullbúin og áætlaður afhendingartími er september 2026. Byggingarverktaki er HeiðGuðByggir ehf.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sjónvarpshol, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. 


Það helsta:
- Húsið er staðsteypt með clt þaki.

- Borðplötur úr kvartssteini eru í eldhúsi og á baðherbergi. 
- Vandaðar dökkar innréttingar og fataskápar frá Tak innréttingum.
- Allar innihurðar eru hvítar með svörtum handföngum.
- Innfelld lýsing í loftum með plejd ljósastýringu.
- Öll loft eru klædd með dúk nema í bílskúr.
- Loftskiptikerfi.
- Vínylparket og flísar á gólfum og epoxy í bílskúr.
- Steypt verönd með niðurfalli, útiljósum og rafmagnstenglum. Gert er ráð fyrir heitum potti á verönd.
- Bílaplan er steypt með snjóbræðslu.
- Sorptunnuskýli fyrir þrár tunnur fylgir hverri íbúð.

Forstofa: Er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Þar er sérsmíðuð innrétting með spanhelluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Borðplötur úr kvarssteini. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með við sölu.
Stofa og eldhús: Mynda gott alrými þar sem eru gólfsíðir gluggar og vínyl parket á gólfi, rennihurð er út á verönd frá stofu.
Baðherbergi: Eru tvö innan eignar. Aðal baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, sérsmíðari innréttingu með borðplötu úr kvarssteini, upphengdu salerni og sturtu. Inn af hjónaherbergi er annað baðherbergi sem er í sama stíl.
Svefnherbergi: Eru þrjú, öll með vínyl parketi á gólfi, innfelldri lýsingu í loftum og fataskápum. Hjónaherbergi er með fataherbergi og baðherbergi inn af.
Sjónvarpshol: Er með vínyl parketi á gólfi.
Þvottahús: Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr. Þar verða flísar á gólfi og innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og ásamt skolvaski. 
Bílskúr: Er skráður 23,2 fm að stærð, með epoxy efni á gólfum og rafdrifinni innkeyrsluhurð. Bílastæði og stétt eru með snjóbræðslu, lokað kerfi með innspýtingu. Tvö steypt bílastæði fylgja hverri íbúð. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla inní bílskúr. 

Athugið að allar þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar - eitthvað misræmi getur verið á milli þeirra og aðalteikninga. 
Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.
Allt efni er birt með fyrirvara um hugsanlegar villur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).


Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
26.3 m2
Fasteignanúmer
2541408
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
09
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Apalskarð 2 (406)
Bílastæði
Apalskarð 2 (406)
221 Hafnarfjörður
124 m2
Fjölbýlishús
413
765 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparstígur 7
Bílskúr
Skoða eignina Klapparstígur 7
Klapparstígur 7
260 Reykjanesbær
172.3 m2
Einbýlishús
514
540 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Skoða eignina Grundarland 19
Bílskúr
Opið hús:03. maí kl 13:00-13:30
Skoða eignina Grundarland 19
Grundarland 19
800 Selfoss
133.8 m2
Raðhús
423
620 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
96 m2
Fjölbýlishús
312
1145 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin