Falleg og vel skipulögð efri hæð með risi í tvíbýli/fjórbýli á þessum vinsæla stað við Hólmgarð 23 í Reykjavík.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 147 fm og skiptist þannig að anddyri er 2,2 fm, aðalhæðin 94,4 fm og risið 50,4 fm. Risið er þó í raun mun stærra þar sem töluvert rými er undir súð. Auk þess fylgir útigeymsla í sameign/garðinum með íbúðinni á neðri hæð.1. hæð – inngangurAnddyri/forstofa með teppi á gólfi. Inn af forstofu er þvottahús með dúk á gólfi. Steyptur stigi með teppi liggur upp á aðalhæðina, þar sem komið er í rúmgott hol.
2. hæð – aðalhæðStofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfi.
Eldhús með flísum á gólfi og á vegg á milli skápa. Vifta og stæði fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu og sturtu.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum og skápum, en laus skápur er í öðru herberginu.
3. hæð – risTréstigi liggur upp í risið þar sem komið er í rúmgott hol með parketi á gólfi og útgengi út á svalir. Þaðan er frábært útsýni.
Í risinu eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfum og skápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu og baðkari.
Einnig er geymslurými undir súð með flísum á gólfi.
Nánasta umhverfi
Fallegur garður, verönd og útigeymsla. Stutt er í fjölbreytta þjónustu, leik- og grunnskóla ásamt ýmsu öðru sem hverfið hefur upp á að bjóða.
Hér er um að ræða fallega og rúmgóða fjölskyldueign á eftirsóttum stað í Reykjavík, með góðu skipulagi, fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og glæsilegu útsýni.Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is