Fasteignaleitin
Opið hús:06. sept. kl 14:00-15:00
Skráð 27. ágúst 2026

Smiðjustígur 2A

ParhúsVesturland/Stykkishólmur-340
252 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
455.952 kr./m2
Fasteignamat
88.400.000 kr.
Brunabótamat
126.150.000 kr.
Mynd af Vernharð S Þorleifsson
Vernharð S Þorleifsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1955
Garður
Svalir
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2116255
Landnúmer
137357
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sjá lýsingu
Raflagnir
Sjá lýsingu
Frárennslislagnir
Sjá lýsingu
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
EINSTAKT HÚS - EINSTAKT TÆKIFÆRI
Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. hjá RE/MAX kynna:
Glæsilega eign með stórum bílskúr á algjörlega mögnuðum stað við bryggjuna í Stykkishólmi.
Árið 2011 létu núverandi eigendur byggja hæð ofan á húsið og er eignin nú samtals 252 fm. Samhliða stækkuninni var húsið endurnýjað að stórum hluta og hefur því verið vel við haldið í gegnum árin. Jafnt að innan sem utan. Bílskúrinn er með stórri innkeyrsluhurð og fyrir framan bílskúrinn eru bílastæði fyrir allt að fimm bíla.
Stórkostlegt útsýni blasir við úr húsinu. Hvort sem notið er sumarkvölds og sólarlags yfir Breiðafirði eða norðurljósanna úr heita pottinum á efstu hæð. Það gerist vart fallegra og staðsetningin á sér fáar hliðstæður.

Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson lgf. í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir lgf. í síma 6987494 / magga@remax.is
Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram 

Þetta er einstök eign sem við mælum eindregið með að áhugasamir kynni sér. Auk þess að vera glæsilegt fjölskylduheimili og hefur þjónað núverandi eigendum sem slík þá býður eignin upp á fjölbreytta möguleika og gæti meðal annars hentað vel fyrir rekstraraðila í ferðaþjónustu.


Nánari lýsing eignar:
Húsið er þrjár hæðir.

Á jarðhæðinni er stór bílskúr, herbergi og salerni.
Á annari hæð er aðalrýmið. Þar er eldhús, borðstofa, þrjú herbergi og gestasalerni.
Á þriðju og efstu hæð er stofa/sjónvarpsrými, herbergi, rúmgott og fallegt baðherbergi og þvottahús. Á efstu hæð er svo útgengt út á þaksvalir með heitum pott. 
Fyrir framan bílskúrinn eru 5 einkastæði á lóð.
Nánari lýsing innan hús:
Jarðhæð:

Forstofa: Komið er inn í forstofu með náttúruflísum, hita í gólfi og lágum skáp. Úr forstofu er gengið inn í bílskúrinn.
Bílskúr: Á fasteignaskrá er hann skráður 83,9 fm. Bílskúrshurðin er 2,74 m á hæð og 3,55 m að breidd. Lofthæð í bílskúr 2,94 m. Búið er að stúka af herbergi og þar er einnig salerni. Flottir gluggar meðfram öllu rýminu sem snýr að bryggjunni. Fyrir framan skúrinn er einkabílastæði sem hægt er að koma fyrir allt að fimm bílum eða tækjum af einhverju tagi. Hægt er að fara inn í skúrinn bæði inn um bílskúrshurð. Þar við hliðina er einnig er inngönguhurð.
Önnur hæð:
Eldhús: Er rúmgott með miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Hiti í gólfi og áfastri eyju sem hægt er að sitja við. Bakaraofn er í vinnuhæð og innbyggður örbylgjuofn.
Borðstofa: Er við hliðina á eldhúsi. Hún er rúmgóð með afar fallegum glugga með setubekk sem snýr til vesturs.
Svefnherbergi: Eru þrjú á hæðinni. Öll með fataskápum
Baðherbergi 1: Er með walk-in sturtu og opnanlegum glugga. Upphengt salerni, handklæðaofn og hiti í gólfi.
Þriðja hæð:
Komið er inn í fallega setustofu sem hægt er að nýta sem borðstofu eða koníaks stofu.
Mjög rúmgott herbergi með góðri skápainnréttingu.
Baðherbergi 2: Með góðri snyrtiaðstöðu. Mjög gott skápapláss og sturtuaðstaða. Handklæðaofn og góð lýsing við spegil.
Þvottaherbergi: Góð aðstaða er í þvottarými með góðri innréttingu og miklu skáparými og skolvask. Þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð og opnanlegur gluggi.
Þaksvalir: Útgengt er út á þaksvalir með heitum potti. Þar er gott seturými og aðstaða fyrir grillið. Hægt að draga markísu yfir allt rýmið og hitarar eru til staðar. Stemmninguna sem myndast þar á góðum degi þarf vart að lýsa. Þriðja hæðin stendur hátt og þar sést vel yfir bæjarlífið, höfnina og vestrið. Ef norðurljósin láta sjá sig á stjörnubjörtu vetrarkvöldi þá er þetta staðurinn til að vera á.
 
Húsið er upphaflega byggt 1955 og var gamli slippurinn í Stykkishólmi.
Ný hæð bætt ofan á 2011 þar af leiðandi nýtt þak.
Hæð 1 og 2 eru steyptar og 3ja efsta hæðin er timbur.
2. og 3ja hæð bárujárnsklæddar á loftræstri grind.
Allir gluggar og hurðar voru endurnýjaðar.
Allar rafmagnslagnir voru endurnýjaðar og ný tafla.
Nýjar neyslulagnir og ofnalagnir lagðar og nýjir ofnar.
Skrautlistar í kringum alla glugga gefa fallegan stíl.
Innfelld led lýsing í öllum rýmum að undanskildu þvottahúsinu.
Lýsing í þakskegginu dregur fram fallegt útlit hússins og gefur því einstaklega virðulegan svip.
Endurnýjun hússins er afar vel gerð og smekkleg í alla staði.
 
Hafið samband við:
Vernharð lgf. í síma 699 7372 eða venni@remax.is
Magga Gísla  lgf. í síma 698 7494 eða magga@remax.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/10/201626.850.000 kr.16.147.000 kr.252 m264.075 kr.Nei
17/10/201626.850.000 kr.16.147.000 kr.252 m264.075 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1955
83.9 m2
Fasteignanúmer
2116255
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
30.700.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grænlandsleið 19
3D Sýn
Bílskúr
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús
524
665 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 8
Skoða eignina Silfursmári 8
Silfursmári 8
201 Kópavogur
121.9 m2
Fjölbýlishús
423
894 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Ásbraut 1
Skoða eignina Ásbraut 1
Ásbraut 1
200 Kópavogur
147 m2
Fjölbýlishús
312
878 þ.kr./m2
129.000.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Hleðslustöð
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90.2 m2
Fjölbýlishús
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin