Guðrún Antonsdóttir fasteignasali S 621 2020 og Lind fasteignasala kynna:
Björt, falleg og einstaklega vel skipulögð nýleg 4ra herbergja íbúð á 3.hæð ásamt bílskúr í bílastæðahúsi með bílastæði fyrir framan. Bílastæðið fyrir framan bílskúrinn er einstaklega rúmgott og notar núverandi eigandi það fyrir tvo bíla. Leyfi er fyrir svalalokun. Svalir snúa til suðurs. Fallegur kvarts steinn frá S.Helgasyni er á borðum, milli skápa og á hliðum innréttingar og eyju í eldhúsi.
Bókið skoðun. 621 2020 eða gudrun@fastlind.isEignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Auk bílskúrs með bílastæði fyrir framan
Nánari lýsing:Forstofan er mjög rúmgóð, með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með vandaðri hvítri Nobilia innréttingu frá GKS með efri og neðri skápum.Vönduð eldhústæki, sjálfhreinsandi bakaraofn í vinnuhæð og sér combi ofn, sem er bæði bakaraofn og örbylgjuofn. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Span helluborð með innbyggðum gufugleypi. Fallegur kvarts steinn frá S.Helgasyni er á borðum, milli skápa og á hliðum innréttingar og eyju.
Stofan er björt og opin inn í eldhús. Parket á gólfi. Gengið er út á rúmgóðar sólríkar svalir frá stofu sem snúa til suðurs inn í stóran inngarð.
Svefnherbergin eru þrjú, öll mjög rúmgóð með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergið er með góðri innréttingu undir handlaug, walk in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum. Blöndunartæki eru vönduð og öll frá Tengi.
Þvottahús er innan forstofu með flísum á gólfi. Stálvaskur og gluggi með opnanlegu fagi.
Sérgeymsla er innan bílskúrs
Bílskúr 23,6fm, er inn í lokuðu bílastæðahúsi. Sjálfvirkur hurðaopnari og vaskur með heitu og köldu vatni. Búið að leggja fyrir uppsetningu á hleðslukerfi fyrir rafbíla. Bílskúrinn er á góðum stað í bílakjallaranum en gengið er inn í stigaganginn við hliðina á bílskúrnum. Bílastæðið fyrir framan bílskúrinn er einstaklega rúmgott og notar núverandi eigandi það fyrir tvo bíla.
Garður: Glæsilegur og vel hannaður sameiginlegur garður er í húsinu með fjölbreyttum leiktækjum, æfingartækjum, bekkjum og grænum svæðum.
Samkvæmt fasteignamati ríkisins er íbúð á hæð skráð 118,5fm, geymsla 6,3 fm og bílskúr 23,6. Samtals 148,4 fm, ásamt bílastæði fyrir framan bílskúr
Seljendur/Kaupendur mínir fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum:
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Vodafone.Frekari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali í síma 621-2020 eða á gudrun@fastlind.is