Atvinnueign kynnir til leigu: 115 fm á þriðju hæð í norðurátt á Köllunarklettsvegi 1.
Um er að ræða opið rými sem hentar vel sem skrifstofa fyrir 6-8 manns. Setukrókur og geymsla er innan skrifstofu og aðstaða til að setja upp prentara. Stórt sameiginlegt fundarherbergi, með skjá og búnaði er samnýtt með öðru rými á hæðinni. Það rými er einnig með sér fundarherbergi. Sameiginleg kaffistofa, fatahengi og geymsluskápar fyrir starfsfólk. Kaffistofan er útbúin tækjum og helsta búnaði.
VSK bætist við leiguverð. Laust strax. Allar nánari upplýsingar veita:Ólafur Ingi Guðmundsson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.isHalldór Már Sverrisson, viðskiptafræðingur, lögg. fasteignasali og leigumiðlari. í síma
898 5599 eða
halldor@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -