Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til LEIGU mjög fallega, rúmgóða og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í einstaklega glæsilegu húsi á frábærum stað í Hlíðunum. Samkvæmt fasteignayfirliti er íbúðin 88,2 fermetrar að stærð og þar af er geymsla 6,2 fermetrar. Eignin er laus til afhendingar strax.
Nýlega er búið að endursteina húsið, mála sameign, endurnýja glugga og gler sem við á og mynda allar lagnir út í götu.
Lýsing eignar:Inngangur, sérinngangur, parketlagður með fatahengi.
Hol / gangur, parketlagt.
Herbergi l, parketlagt og rúmgott með gluggum í tvær áttir.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, flísalögð sturta með sturtugleri, innrétting og upphengt wc.
Stofa / borðstofa, rúmgóð, parketlögð og björt með fallegri gluggasetningu.
Herbergi ll, parketlagt, með fataskápum á heilum vegg og gluggum í tvær áttir.
Eldhús, er opið við gang, parketlagt og með hvítri Ikea innréttingum, dökkri viðarborðplötu, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og borðaðstöðu.
Húsið, lítur mjög vel út og er gott viðhald á því. Nýlega er búið að steina allt húsið, og gluggar og gler sem við á voru endurnýjaðir fyrir 5 árum.
Í kjallara hússins er:Sér geymsla, 5,1 fermetrar með máluðu gólfi og hillum.
Sameiginlegt þvottaherbergi, rúmgott, máluð gólf og hver með sína vél.
Sameiginleg hitakompa sem nýtt er sem hjóla og vagnageymsla.Staðsetning eignarinnar er í mjög góðri nálægð við grunnskóla, leikskóla, menntaskóla, verslun og alla helstu þjónustu, svo og fallegar göngu- og hjólaleiðir í Klambratún, Öskjuhlíð og Nauthólfsvík.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu sigridur@fastmark.