Fasteignaleitin
Skráð 22. júlí 2026

Haukahlíð 2 - íbúð 417

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
122.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
126.900.000 kr.
Fermetraverð
1.035.073 kr./m2
4. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532698
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Hlíðarhorn.is kynnir Haukahlíð 2, 102 Reykjavík - Íbúð 417. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í nóvember 2026 með fyrirvara um öryggisúttekt.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

Glæsileg 4ja herbergja íbúð á 4. hæð. Birt stærð er 122,6 fm þar af 16,8 fm geymsla í kjallara. Íbúðin er gegnumlýst (norður/suður) og skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðaraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.

Nánari lýsing: Anddyri er rúmgott og opið með góðum fataskáp. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir inn í innri garð. Stór eyja í eldhúsi. Dökkgrá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Hjónaherbergi með góðum fataskápum. Tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með fataskáp. Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, dökkgrá innrétting og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, gráum steinflísum og tengi fyrir vask. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð í innréttingu. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0095 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá link að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 168 607
Bílastæði
Opið hús:23. júlí kl 12:00-12:30
Laugavegur 168 607
105 Reykjavík
114.3 m2
Fjölbýlishús
323
1486 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Bílastæði
Opið hús:23. júlí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
112.1 m2
Fjölbýlishús
312
1087 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Bílastæði
Opið hús:23. júlí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
112.6 m2
Fjölbýlishús
423
1154 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168
Bílastæði
Opið hús:23. júlí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Laugavegur 168
Laugavegur 168
105 Reykjavík
104.7 m2
Fjölbýlishús
312
1050 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin