Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2026

Akurgerði 37

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
105.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
1.043.685 kr./m2
Brunabótamat
51.450.000 kr.
Byggt 1956
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
20344571
Húsgerð
Raðhús

Eignamiðlun kynnir:

Afar smekklegt, vel skipulagt og bjart parhús með sólríkri verönd og stórum grónum garði í barnvænu hverfi. Húsið er á tveimur hæðum, skráð í fasteignamati 105,3 fermetrar sem skiptist í 60,5 fermetra neðri hæð og 44,8 fermetra efri hæð sem er talsvert undir súð þannig að gólfflötur beggja hæða er svipaður. Á neðri hæð er rúmgóð forstofa með snyrtingu og þvottahúsi innaf, björt stofa og borðstofa með gluggum að garði og dyrum út á verönd, eldhús opið til borðstofu og stigi með stórum gluggum sem veita mikilli birtu inn á báðar hæðir. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Svalir frá hjónaherbergi.  Til eru teikningar af bílskúr við húsið. Mikið endurnýjað, mjög snyrtilegt, fallegt og bjart hús á stórri lóð.
Seljandi gæti haft áhuga á skiptum á þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, með verönd og bílastæði í bílastæðahúsi.
Hringið og bókið skoðun.


Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina. Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.


Ágæt aðkoma er að húsinu, en hægt er að leggja við enda hússins þar sem verður aðkoma að bílskurnum sem hefur verið hannaður á lóðina. Einnig eru bílastæði í götunni. Gengið er inn í húsið í enda þess, inn í forstofu þar sem er stór spegill og fataskápur í holi fyrir innan forstofurými. Til hægri úr forstofu er þvottahús og snyrting, flísalagt með vegghengdu salerni og handklæðaofni, nægu plássi fyrir þvottavél og þurrkara, ásamt glugga.
Í holi er stigahús til hægri. Stigi er með kókosteppi, stór gluggi í stiga veitir góðri birtu inn í stiga og hol, en mikil birta einkennir allt húsið. Til vinstri úr holi er gengið í rúmgóða stofu og borstofu þar sem eru bjartir gluggar að garði. Hvítir veggfastir skápar eru á vegg í borðstofu sem setja mikinn svip á rýmið, en sambærilegir skápar eru á vegg í holi við stiga. Gengið er úr borðstofu út á verönd í garði.
Eldhús er opið að borðstofu, með smekklegu hvítum innréttingum, grárri borðplötu, stállituðum og svörtum tækjum.
Ljósgráar flísar eru á allri neðri hæðinni, sem eykur enn á tilfinningu fyrir birtu. Gólfhiti er á allri hæðinni.
Á efri hæð, sem er að hluta undir súð, eru þrjú svefnherbergi ásamt baðherbergi. Gengið er í öll rýmin af stigapalli. Baðherbergi er endurnýjað með gráum flísum, göngusturtu með glerskilrúmi og rennuniðurfalli, vegghengdu salerni og vaski í innréttingu með speglaskáp yfir. Herbergin eru rúmgóð og björt, með skápum og viðarparketi. Eins flísar eru á baði og stigapalli eins og á allri neðri hæðinni.

Viðhald og framkvæmdir:
2010 Kvistur, stækkuð efri hæðin og þak. Komin lokaúttekt hjá RVK 2022. Komið samþykki og til teikningar að 28fm bílskúr og að sögn fyrri eiganda var gerður grunnur undir skúrnum. Rafmagnstafla endurnýjuð um svipað leiti.
2018 Malbikað plan, drenað og vatnsbrunnar. Settar hitalagnir í bílaplanið.
2019 Gluggar á austurhlið. Nýtt tréverk og gler.
2019 Hiti í golfið á neðri hæð og nýjir ofnar á efri hæð.
2019 Flísalagt. Nýjar hurðir. Hleri uppá háaloft lagað. Skipt um tengla og sett dimmer á flesta. Baðherbergi á efri hæð.
2022 Stóri glugginn í stofu, tréverk ytra og gler.
2022 Dren frá eldhúsvaski.
2024 Verönd sílanborin.
2024 Garðskúr málaður og tréveggur við verönd.
2024 Gluggi endurnýjaður - trévrk og gler - í eldhúsi.
2025 Tréverk gluggar málað inni.
2025 Hús málað og tréverk úti.
 
Húsið er einstaklega smekklega endurnýjað og vel um gengið. Eign sem vert er að skoða.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Safamýri 27
3D Sýn
Skoða eignina Safamýri 27
Safamýri 27
108 Reykjavík
109.8 m2
Fjölbýlishús
414
796 þ.kr./m2
87.400.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (404)
Hleðslustöð
Opið hús:08. sept. kl 12:30-13:00
404.jpg
Skoða eignina Laugaborg (404)
Laugaborg (404)
105 Reykjavík
121.2 m2
Fjölbýlishús
413
1022 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (303)
Hleðslustöð
Opið hús:08. sept. kl 12:30-13:00
303.jpg
Skoða eignina Laugaborg (303)
Laugaborg (303)
105 Reykjavík
98.8 m2
Fjölbýlishús
212
1011 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 316
Hleðslustöð
Opið hús:08. sept. kl 12:30-13:00
316.jpg
Skoða eignina Laugaborg 316
Laugaborg 316
105 Reykjavík
94.1 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin