Kotabyggð 47, Nýbygging - Glæsilegt og vandað steypt 4-5 herbergja einbýlishús með bílskúr á einni hæð á fallegum útsýnisstað í Vaðlaheiðinni - stærð 205,8 m², þar af er bílskúr og geymsla inn af skráð 30,8 m² Lóðin er eignarlóð, skráð 2.174 m² að stærð.
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **
Húsið er hannað af Valbirni Vilhjálmssyni, m2hús ehf. Byggingarverktaki er BB byggingar ehf.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, tvö 8,7 m² barnaherbergi, baðherbergi, tvær geymslur (önnur er 8,7 m² og getur nýst sem þriðja barnaherbergið), þvottahús og bílskúr.
Eignin selst á núverandi byggingarstigi, að má segja tilbúin undir spösslun og málningu að innan og tilbúin fyrir klæðningu að utan. Lóð er grófjöfnuð.
Almennt Sökklar eru steinsteyptir og einangraðir að utan með 100mm sökkulplötum. Gólfplata er steypt og einangruð að neðan með 100mm plasteinangrun. Gólf eru flotuð í helstu rýmum. Útveggir eru steyptir og einangraðir að utan með 100mm steinull. Innveggir: Berandi innveggir eru steyptir. Léttir innveggir eru blikkstoðir, klæddir með með OSB krossvið og gipsi. Þak er steypt og einangrað að utan með harðpressaðri þéttull og komið eitt lag af pappa. Niðurföll eru tengd. Gluggar og hurðir eru timbur/ál með tvöföldu einangrunargleri og koma frá Rationel. Litur á álkápu er grár og að innan eru gluggar hvítir. Bráðabirgðarlokun verður á bílskúrshurð sem seljandi fær til baka þegar innkeyrsluhurð hefur verið komið í. Inntök fyrir vatn og rafmagn eru greidd og komin inn í hús, ótengd. Gólfhitalagnir eru steyptar í gólfplötu. Raflagnir: Að innan verða allar dósir í bæði inn- og útveggjum komnar en ekki búið að draga í neitt. Töflukassi fylgir ekki með. Ídráttarrör eru út á nokkrum stöðum fyrir t.d. útilýsingu. Loftræsting: Gert er ráð fyrir að sett verði upp loftskipti kerfi í húsinu sem tengist inn í öll rými nema bílskúr. Lóð og bílaplan verður grófjafnað. Ídráttarrör fyrir snjóbræðslu eru til staðar bæði við bílaplan og verönd. Búið er að steypa veggi við suður hlið hússins þar sem gert er ráð fyrir rúmlega 80 m² steyptri verönd. Steypt skyggni er yfir hluta. Ídráttarrör fyrir snjóbræðslu og heitan pott eru til staðar. Útgengt er á veröndina úr eldhúsi, stofu og aðal baðherbergi.
Kaupandi greiður skipulagsgjald þegar það verður lagt á, 0,3% af brunabótamati eignar.
Nánari upplýsingar veitir Bubbi s. 466 1600 / 862 0440 eða bubbi@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Búið er að koma fyrir dósum í veggjum og lofti en ekki draga í neitt. Inntaksgjald er greitt.
Frárennslislagnir
2025 - sameiginleg rotþró er fyrir götuna.
Gluggar / Gler
2025
Þak
2025 - eftir er að setja seinna lag af pappa og flasningar
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - Gólfhitalagnir eru í öllum rýmum.
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Kotabyggð 47, Nýbygging - Glæsilegt og vandað steypt 4-5 herbergja einbýlishús með bílskúr á einni hæð á fallegum útsýnisstað í Vaðlaheiðinni - stærð 205,8 m², þar af er bílskúr og geymsla inn af skráð 30,8 m² Lóðin er eignarlóð, skráð 2.174 m² að stærð.
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **
Húsið er hannað af Valbirni Vilhjálmssyni, m2hús ehf. Byggingarverktaki er BB byggingar ehf.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, tvö 8,7 m² barnaherbergi, baðherbergi, tvær geymslur (önnur er 8,7 m² og getur nýst sem þriðja barnaherbergið), þvottahús og bílskúr.
Eignin selst á núverandi byggingarstigi, að má segja tilbúin undir spösslun og málningu að innan og tilbúin fyrir klæðningu að utan. Lóð er grófjöfnuð.
Almennt Sökklar eru steinsteyptir og einangraðir að utan með 100mm sökkulplötum. Gólfplata er steypt og einangruð að neðan með 100mm plasteinangrun. Gólf eru flotuð í helstu rýmum. Útveggir eru steyptir og einangraðir að utan með 100mm steinull. Innveggir: Berandi innveggir eru steyptir. Léttir innveggir eru blikkstoðir, klæddir með með OSB krossvið og gipsi. Þak er steypt og einangrað að utan með harðpressaðri þéttull og komið eitt lag af pappa. Niðurföll eru tengd. Gluggar og hurðir eru timbur/ál með tvöföldu einangrunargleri og koma frá Rationel. Litur á álkápu er grár og að innan eru gluggar hvítir. Bráðabirgðarlokun verður á bílskúrshurð sem seljandi fær til baka þegar innkeyrsluhurð hefur verið komið í. Inntök fyrir vatn og rafmagn eru greidd og komin inn í hús, ótengd. Gólfhitalagnir eru steyptar í gólfplötu. Raflagnir: Að innan verða allar dósir í bæði inn- og útveggjum komnar en ekki búið að draga í neitt. Töflukassi fylgir ekki með. Ídráttarrör eru út á nokkrum stöðum fyrir t.d. útilýsingu. Loftræsting: Gert er ráð fyrir að sett verði upp loftskipti kerfi í húsinu sem tengist inn í öll rými nema bílskúr. Lóð og bílaplan verður grófjafnað. Ídráttarrör fyrir snjóbræðslu eru til staðar bæði við bílaplan og verönd. Búið er að steypa veggi við suður hlið hússins þar sem gert er ráð fyrir rúmlega 80 m² steyptri verönd. Steypt skyggni er yfir hluta. Ídráttarrör fyrir snjóbræðslu og heitan pott eru til staðar. Útgengt er á veröndina úr eldhúsi, stofu og aðal baðherbergi.
Kaupandi greiður skipulagsgjald þegar það verður lagt á, 0,3% af brunabótamati eignar.
Nánari upplýsingar veitir Bubbi s. 466 1600 / 862 0440 eða bubbi@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.