Fasteignaleitin
Opið hús:18. júní kl 17:30-18:00
Skráð 13. júní 2026

Fagrakinn 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
40 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
1.247.500 kr./m2
Fasteignamat
38.650.000 kr.
Brunabótamat
20.500.000 kr.
Mynd af Hrönn Ingólfsdóttir
Hrönn Ingólfsdóttir
Fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2074655
Landnúmer
120394
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Þarfnast viðgerðar að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Seljandi kemur til með að skipta um glugga og gler á suðurhlið íbúðarinnar fyrir afhendingu.
Hrönn Ingólfsdóttir lgfs og Prima fasteignir kynna í einkasölu: Afar snotra og sjarmerandi risíbúð við Fögrukinn 2 í Hafnarfirði. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og er skráð samkvæmt HMS 40fm að stærð en er að raunstærð að gólffleti um 80fm. Um er að ræða lítið þríbýlishús á þessum eftirsótta stað í Hafnarfirði. Eignin skiptist þannig: forstofa, eldhús, stofa, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsluris og sameiginleg geymsla í sameign. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.

Nánari lýsing eignar: 
Komið er inn í íbúðina upp snyrtilegan teppalagðan stiga úr sameign.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni. 
Björt stofa og borðstofa flæða saman í rúmgott alrými.
Eldhús með snoturri eldri innréttingu sem hefur verið frískað uppá með málningu.
Þvottahús/geymsla er við hlið eldhúss.
Nýlega uppgert baðherbergi með upphengdu salerni, handklæðofni og sturtuklefa. Gluggi er á baðherbergi.
 
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/09/202022.650.000 kr.28.500.000 kr.40 m2712.500 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vindakór 8
Bílastæði
Opið hús:18. júní kl 18:00-18:30
Skoða eignina Vindakór 8
Vindakór 8
203 Kópavogur
148.9 m2
Fjölbýlishús
413
688 þ.kr./m2
102.500.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 57
Bílskúr
Opið hús:18. júní kl 16:30-17:00
Skoða eignina Kristnibraut 57
Kristnibraut 57
113 Reykjavík
126.6 m2
Fjölbýlishús
312
710 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Trönudalur 1
Opið hús:18. júní kl 18:45-19:15
Skoða eignina Trönudalur 1
Trönudalur 1
260 Reykjanesbær
76 m2
Fjölbýlishús
312
707 þ.kr./m2
53.700.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Tjarnabraut 16
260 Reykjanesbær
106.1 m2
Fjölbýlishús
413
565 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin