Fasteignaleitin
Skráð 28. apríl 2026

Hásalir 11

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
208.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
165.900.000 kr.
Fermetraverð
795.302 kr./m2
Fasteignamat
157.550.000 kr.
Brunabótamat
96.000.000 kr.
Mynd af Kristján Gíslason
Kristján Gíslason
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2238482
Landnúmer
179951
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestur svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala kynnir glæsilegt og vel staðsett endaraðhús á þremur pöllum, við Hásali 11 í Kópavogi. Húsið er samtals 208,6 fm að meðtöldum 29,3 fm bílskúr með stóru millilofti. Í húsinu eru m.a. fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi. Aukin lofthæð er í miðju hússins. Eldhús og stofa mynda fallegt alrými. Í stofunni er kamína og hægt er að ganga út í garðinn úr stofu, eldhúsi og þvottahúsi. Garðurinn er fallegur og gróinn og þar er viðarverönd sem á stendur lítið gróðurhús. Fyrir framan húsið eru þrjú bílastæði.

Eignin Hásalir 11 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 223-8482, birt stærð 208.6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason  í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.is

Smellið hér til þess að sjá myndband af eigninin

NÁNARI LÝSING:
Aðalinngangur hússins er á austurhlið þess og snýr út að götu. Hinum megin götunnar er opið svæði með leikvelli og þar er göngustígur sem er á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs. Komið er inn í flísalagt anddyri með fataskáp og fatahengi. Úr anddyrinu er gengt inn í bílskúrinn. Húsið er á þremur pöllum og er anddyrið á miðpallinum.
Á miðpallinum fyrir innan anddyrið er stórt flísalagt hol með mikilli lofthæð og stórum glugga á suðurhlið. Holið er nýtt í dag sem sjónvarpshol. Á miðpallinum er baðherbergi með sturtu og upphengdu salerni. Þar er líka svefnherbergi með fallegum hornglugga. 
Á efsta pallinum eru þrjú svefnherbergi og stórt baðherbergi. Baðherbergið er með baðkari, stórum sturtuklefa með tvöfaldri sturtu og opnanlegum glugga. Ljósar flísar á gólfi, stór innrétting í kringum vaskinn og vaskaborðið er flísalagt. Þar er líka línskápur og í botni hans er lúga til þess að setja óhreina þvottinn niður í þvottahúsið. Fataherbergi er innaf hjónaherberginu og svefnherbergið næst baðherberginu er með fallegum hornglugga og vestur-svölum. 
Á neðsta pallinum eru stofa og eldhús sem mynda fallegt alrými og hægt er að ganga út í garðinn bæði úr stofu og eldhúsi. Parket er á gólfi stofunnar nema undir kamínunni og flísar eru á eldhúsgólfi. Fallegur skápur er á milli stofu og eldhús. Í eldhúsinu er falleg innrétting úr ask og hnotu með stein borðplötu. Bakarofn og uppþvottavél í vinnuhæð og borð til að sitja við, sem er áfast við innréttinguna. Innaf eldhúsi er þvottahúsið. Þar var upphaflega einnig teiknuð geymsla, en er eitt rými í dag. Þar er vaskur með heitu og köldu vatni, vinnuborð og snúrur. Hægt er að ganga úr þvottahúsi út í garðinn.
Bílskúrinn er 29,3 fm og í honum er auk þess stórt milliloft. Í skúrnum er vaskur með heitu- og köldu vatni og epoxy á gólfi. Rafmagnsopnun er á bílskúrshurð og fylgir fjarstýring. Innangengt er úr húsinu í bílskúrinn. Fyrir framan húsið, austan megin, eru þrjú bílastæði, þar af tvö með snjóbræðslu. Niður með suðurhlið hússins er hellulögð stétt og hellulögð verönd ásamt fallegum trjám. Fyrir framan allt húsið, í vestur, er timburverönd ásamt litlu gróðurhúsi. Fyrir framan veröndina er gras og síðan runnar meðfram allri lóðinni. 

Niðurlag:
Húsið er frábærlega staðsett inn í botnlanga og hinum megin við götuna að framanverður, er útivistarsvæði ásamt hjóla og göngustíg. Allar innréttingar eru úr hnotu og aski og allt parket í húsinu er gegnheill Askur.

Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2001
29.3 m2
Fasteignanúmer
2238482
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.950.000 kr.

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hádegisskarð 10
Bílskúr
Hádegisskarð 10
221 Hafnarfjörður
182.4 m2
Hæð
524
762 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Skoða eignina Kvíslartunga 60
Bílskúr
Skoða eignina Kvíslartunga 60
Kvíslartunga 60
270 Mosfellsbær
240.2 m2
Raðhús
614
666 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 5
Bílastæði
Skoða eignina Sunnusmári 5
Sunnusmári 5
201 Kópavogur
101.4 m2
Fjölbýlishús
312
788 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 303
Lautargata 5 íb. 303
210 Garðabær
139.3 m2
Fjölbýlishús
413
961 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin