RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg, björt og töluvert endurnýjuð þriggja herbergja 73,8 f. íbúð á jarðhæð við Fellsmúla 5, Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, opið hol, eldhús opið til borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla er innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús í sameign ( á sömu hæð) ásamt hjóla- og vagnageymslu. Næg sameiginleg bílastæði og stór sameiginlegur garður með leiktækjum.
Góð eign á eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, samgöngur, alla helstu þjónustu og verslanir.KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRFÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRNánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is
Nánari lýsing: Forstofa er með góðu fatahengi og harðparketi á gólfi. Nýleg brunavarnarhurð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og björt með gluggum til vesturs. Sérsmíðað naglfast fatahengi er í hjónaherbergi. Harðparket á gólfum.
Eldhús er opið til stofu og borðstofu, nýlega uppgert. Fallegar hvítar innréttingar með góðu skápaplássi. Ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, spanhelluborð og vifta. Innbyggð uppþvottavél fylgir ekki en frontur fyrir uppþvottavél getur fylgt. Stór og bjartur gluggi. Harðparket er á gólfum.
Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými, harðparket á gólfum. Nýlega var veggur milli eldhúss og stofu tekinn niður og opnað á milli.
Baðherbergi er nýlega uppgert, flísalagt í hólf og gólf. Falleg vaskinnrétting með góðu hilluplássi, opin sturta með möttu glerþili og upphengt salerni.
Geymsla er innan íbúðar.
Þvottahús er í sameign á sömu hæð (sértengill íbúðar fyrir þvottavél og þurrkara) ásamt
hjóla- og vagnageymslu.Garður sameiginlegur með leiktækjum.
Snyrtileg sameign og frágengin lóð. Næg sameiginleg
bílastæði.
Innan íbúðar var eldhús endurnýjað 2024, veggur tekinn niður milli stofu opnað á milli. Sett auka rafmagnstafla í eldhús og rafmagn endurnýjað í eldhúsi og stofu að hluta. Ný gólfefni og listar. Skipt um alla ofna. Baðherbergi endurnýjað 2020, frárennsli yfirfarið og fóðrað undir baðherbergi og geymslu.
Skv. upplýsingum frá húsfélaginu var farið í framkvæmdir á ytra byrði 2018-2020. Múrviðgert og málað á norðurhlið (steyptir fletir), allir gluggar málaðir og skipt um alla glugga á austurhlið og suðurgafli hússins. Endurnýjun á klæðingu stigaganga og stálhandriða. Skipt um teppi á stigagangi og málað 2024. Skipt um ofn í sameign 2023 og sett tæringarvörn. Tröppur við útgang endursteyptar. Þak lagað og endurnýjun þakrenna og niðurfallsröra. Einnig þak og þakklæðning á anddyri endurnýjað í sameign 2024. Nýleg brunarvarnarhurð inn í íbúð og myndavéladyrasími.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.