Fasteignaleitin
Skráð 4. mars 2026

Engjasel 35

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
92.5 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
647.568 kr./m2
Fasteignamat
61.800.000 kr.
Brunabótamat
52.310.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2055798
Landnúmer
113069
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Þarfnast skoðunar
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
3,39
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
- Það eru engar fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags amkvæmt yfirlýsingu frá húsfélagi í mars 2026.
Gallar
ATH. - Eignin hefur verið í útleigu í 5-6 ár eða nánast allan tíman sem núverandi eigendur hafa átt eignina. Eigendum er ókunnugt um hvernig ástand fastamuna hrakaði svona mikið frá því þau keyptu eignina 2020. Eigendur hafa aldrei búið í eigninni og þekkja því ekki að fullu ástand eignarinnar.
 
Fasteignasalan TORG kynnir í sölu 3ja herbergja íbúð á 1. hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu að Engjaseli 35 í Seljahverfinu. Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sér geymslu innan sameignar. Vel skipulögð eign á vinsælum stað í Seljahverfinu. Stór sameiginegur garður er bak við húsið. Stutt er í leik- og grunnskóla ásamt alla helstu þjónustu og verslanir. Íbúðin er laus við kaupsamning. Vel skipulögð íbúð í litlu fjölbýli á vinsælum stað í Seljahverfinu. Stutt er í leik- og grunnskóla, útivist og alla helstu þjónustu og stofnbrautir. Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Bjarna Löggiltur fasteignasali, í síma 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 92,5 m² þar af er íbúð skráð 85,6 m² og sér geymsla í kjallara skráð 6,9 m² - Bílastæði í bílageymslu merkt: B016 tilheyrir eigninni.

Nánari lýsing:
Anddyri, komið er inn í parketlagt anddyri með fataskáp og opið við hol.
Hol er parketlagt, inn af anddyri og sameinar önnur rými íbúðar.
Stofa er opin inn af holi með parket á gólfi. Rúmar vel borðstofu og stofu, og útgengt þaðan út á norð-vestur svalir með útsýni, m.a. yfir Esjuna og Snæfellsjökul.
Eldhús er rúmgott með eldri innréttingu og borðkrók, dúkur á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, með parket á gólfi og fatakápum. Einnig er skápur í holi fyrir framan svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, innréttingu með handlaug og neðri skápum, salerni og tengi fyrir þvottavél. Stæði fyrir þvottavél er í skápainnréttingu. 
Parket á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi og eldhús.

Sérgeymsla íbúðar (6,9 m²) með hillum er staðsett inn af sameignargangi í kjallara hússins.
Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt þurrkherbergi og sameiginlegri geymslu.
Stæði í lokaðir bílageymslu fylgir eigninni og er innangengt úr húsi. 
Góð bílastæði á tveimur stöðum utandyra tilheyra húsinu og húsunum í kring.

Nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Bjarnason
 - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532adalsteinn@fstorg.is
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/01/202035.900.000 kr.33.000.000 kr.92.5 m2356.756 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1975
Fasteignanúmer
2055798
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
16
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.860.000 kr.

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0105
Hnjúkamói 16, íbúð 0105
815 Þorlákshöfn
50.7 m2
Fjölbýlishús
211
886 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16, íbúð 0102
Hnjúkamói 16, íbúð 0102
815 Þorlákshöfn
67 m2
Fjölbýlishús
312
790 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 ÞAKÍBÚÐ 502 m bílskúr
Bílskúr
Hnjúkamói 16 ÞAKÍbúð 502 m bílskúr
815 Þorlákshöfn
157 m2
Fjölbýlishús
413
700 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 16 ÞAKÍBÚÐ 501 m bílskúr
Bílskúr
Hnjúkamói 16 ÞAKÍbúð 501 m bílskúr
815 Þorlákshöfn
135.8 m2
Fjölbýlishús
413
736 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin