***DOMUSNOVA KYNNIR * SNOTUR RÚMGÓÐ 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í NÁGRENNI VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS*** Birt stærð eignarinnar telst vera
79,9 fm. hjá HMS og skiptist íbúðin í
rúmgóða forstofu með fataskáp,
gott eldhús með borðkrók, stóra
stofu, rúmgott
svefnherbergi og fallegt
baðherbergi með glugga. Íbúðin er á neðstu hæð, jarðhæð/kjallari í fallegu fjölbýlishúsi.
Sérgeymsla (3,1 fm) með glugga.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi þar sem hver íbúð er með sinn rafmagnstengil.
Hjólageymsla er sameiginleg með heildarhúsinu nr. 36-42 og er staðsett í endabílskúr.
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Bjart með dökkri snyrtilegri innréttingu með endurnýjuðum frontum, flísar á milli skápa, harðparketi á gólfi og góður borðkrókur.
Stofa: Rúmgóð og björt með gegnheilu parketi.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með hvítum skápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Er endurnýjað með dökkum innréttingum, sturtu með steyptum botn og gólfsíðu gleri. Baðherbergið er flísalagt fallegum 60x60 flísum bæði gólf og veggir og góður gluggi með opnanlegu fagi.
Sér geymsla: Er frammi á sameign og er skráð 3,1 fm.
Þvottahús: Sameiginlegt þar sem hver er með sína vél tengda rafmagnstengli sinnar íbúðar.
Þurrkherbergi: Sameiginlegt og er inn af þvottahúsinu.
Hjólageymsla: Sameiginleg með H36-42 í endabílskúr (24 fm) merktur 05-0101.
Sjarmerandi og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á neðstu í fallegu fjölbýlishúsi í Vesturbænum. Fjölskylduvænt hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, skóla og Háskóli Íslands er steinsnar frá.
Á árinu 2013 lauk umfangsmiklum utanhússviðviðgerðum á húsin en þá var húsið steypuviðgert og viðgerðir á klæðningu, skipt um glugga og gert við eftir þörfum, þakkantur var endursteyptur og þak endurbætt, dren endurnýjað og skólplagnir út frá húsinu, snjóbræðsla lögð og stétt endurnýjuð. Í sameign á Hjarðarhaga 42 var rafmagnstafla og raflagnir endurnýjaðar fyrir nokkrum árum.2018 - Baðherbergi allt endurnýjað og eldhús að hluta.
2019 - Ný eldvarnarhurð inn í íbúð.
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Andri Hrafn Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.698-2127 / andri@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.