Fasteignaleitin
Skráð 14. ágúst 2026

Samtún 2

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
137.2 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
107.900.000 kr.
Fermetraverð
786.443 kr./m2
Fasteignamat
83.150.000 kr.
Brunabótamat
59.400.000 kr.
Mynd af Guðmundur Þór Júlíusson
Guðmundur Þór Júlíusson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1946
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2009513
Landnúmer
102802
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
02
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Einstaklega sjarmerandi parhús á tveimur hæðum við Samtún 2 í Reykjavík. Eignin er skráð 137,2 fm, þar af 68,6 fm á hvorri hæð, og fylgir henni sjálfstæð stúdíóíbúð í kjallara.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is

Húsið stendur á steyptum grunni og efri hæðin er forskalað timburhús. Á lóðinni er stór, afgirtur og gróinn suðurgarður með góðum palli. Hér er því um að ræða einstakt tækifæri til að eignast notalegt sérbýli með aukaíbúð, góðum útivistarsvæði og fallegu útsýni í hjarta Reykjavíkur.

Stúdíóíbúðin er með þinglýstan leigusamning að fjárhæð 200.000 kr. á mánuði og möguleiki er á að yfirtaka samninginn.

Skipulag:
Efri hæð: Forstofa, eldhús, borðstofa/stofa og tvö svefnherbergi.
Neðri hæð: Tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og stúdíóíbúð með sérinngangi.

Efri hæð
Gengið er inn í snyrtilega forstofu með flísalögðu gólfi og fatahengi. Þaðan er komið inn í bjart og opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda eina heild. Frá stofunni er gengið beint út í stóran, afgirtan bakgarð.
Eldhúsið er rúmgott og vel skipulagt með L-laga innréttingu, eyju og stórum borðkrók. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn og bjóða jafnframt upp á glæsilegt útsýni yfir meðal annars Höfða, Akrafjall, Skarðsheiði og Esjuna.
Stofan er mjög rúmgóð og björt. Á hæðinni eru tvö svefnherbergi, bæði með lausum fataskápum. Gólffjalir eru á allri hæðinni, að undanskilinni forstofu. Yfir efri hæðinni er geymsluloft sem nýtist vel til aukinnar geymslu.

Neðri hæð
Stigi með kókosteppi liggur niður á neðri hæðina. Þar eru tvö svefnherbergi, bæði með flotlögðu gólfi, og er annað þeirra með litlum innbyggðum skáp.
Baðherbergið er flísalagt og er með baðkari, glugga og góðum skápaplássi. Á ganginum er einnig gott skápapláss. Þvottahúsið er rúmgott, með flotlögðu gólfi og glugga.
Stúdíóíbúð
Stúdíóíbúðin er með sérinngangi og er komið inn í forstofu. Baðherbergið er með sturtuklefa og salerni í sérstöku rými. Frá baðherberginu er innangengt í þvottahúsið.
Aðalrými íbúðarinnar er opið og nýtist sem svefnrými, eldhús og stofa. Þar er lítil eldhúsinnrétting og ísskápur fylgir. Öll gólf eru flotlögð og lökkuð.
Garður og bílastæði

Eigninni fylgir stór, afgirtur og gróinn sérgarður með góðum palli sem býður upp á skemmtilega möguleika til útiveru og samveru. Undir stiganum er köld útigeymsla.
Byggingarréttur er fyrir bílskúr samkvæmt deiliskipulagi og þegar hafa verið samþykktar teikningar fyrir bílskúr. Sérbílastæði er við hlið hússins og gott aðgengi er að hleðslu rafbíls í gegnum þvottahúsið.
Hér er því á ferðinni sjarmerandi og vel nýtt sérbýli með fjölmörgum spennandi möguleikum, sjálfstæðri aukaíbúð, stórum garði, bílastæði og bílskúrsrétti – allt á eftirsóttum stað í hjarta Reykjavíkur.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/07/202050.050.000 kr.62.000.000 kr.137.2 m2451.895 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 (326)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (326)
102 Reykjavík
128.4 m2
Fjölbýlishús
413
957 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (420)
Bílskúr
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (420)
102 Reykjavík
163.5 m2
Fjölbýlishús
413
856 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (226)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (226)
102 Reykjavík
120.2 m2
Fjölbýlishús
423
1006 þ.kr./m2
120.900.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 52
Bílskúr
Háaleitisbraut 52
108 Reykjavík
129.1 m2
Fjölbýlishús
413
673 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin