OPIÐ HÚS MÁNUDAGINN 21. OKTÓBER FRÁ KL.18:30-19:00Nánari upplýsingar veitir GUÐNÝ ÞORSTEINS í síma 771-5211 eða á netfanginu gudnyth@remax.is.
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU KYNNINGU Á EIGNINNIRE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS kynna í einkasölu: Glæsilega eign að Bjarkardal 8b,
heildarstærð 146,6 fm. Íbúðin er einstaklega vönduð og vel skipulögð með aukinni lofthæð, sérinngangi í fjórbýlishúsi sem byggt var árið 2020.
Íbúðin er 105,9fm, bílskúr 24,4fm og sólskáli 16,3 fm.SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3D (ekki er þörf á sérstöku forriti til þess)SMELLTU HÉR OG FÁÐU SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDISHelstu kostir:Lúxus innréttingar: Þýskar innréttingar frá Nobila, innbyggður ísskápur með frysti ásamt uppþvottavél. Falleg lýsing er frá Lumex.
Tvö baðherbergi: Bæði eru með gólfhita og hágæða hreinlætistækjum.
Stórar svalir með sólskála: 40fm svalir með vönduðum 16,3fm Corso garðskála og rafmagns saltvatnspotti frá Arctic Spas, einstakt útsýni.
Bílskúr með epoxy á gólfi: Sjálfvirkur hurðaopnari ásamt rafhleðslustöð.
Vönduð gólfefni: Ítalskar flísar á votrýmum og harðparket frá Parka á stofu og svefnherbergjum.
Frábær staðsetning: Íbúðin er aðeins 20 mínútur frá höfuðborgarsvæðinu og steinsnar frá Stapaskóla.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð með rúmgóðum fataskápum. Hægt að ganga inn í eldhús og alrými.
Eldhús: Flísar á gólfi, með sér smíðuðum innréttingum og borðplötu úr Meganite “stein”, dimmanleg lýsing er undir efri skápum. Eldhúsið er með innbyggðum tækjum frá Progress (AEG).
Stofa: Er björt og rúmgóð með harðparketi ásamt útgangi út á svalir.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi er með virkilega góðum fataskápum
sér baðherbergi ásamt útgangi út á svalir með sólskála.Svefnherbergi II: Er með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergin: Eru bæði flísalögð með gólfhita, fallegum innréttingum og steinborðplötu.
Annað baðherbergi er inn af hjónaherbergi.Þvottahús: Flísar á gólfi. Vönduð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, ásamt skolvask.
Svalir og sólskáli: Svalirnar eru 40fm með 16,3fm sólskála sem er opnanlegur með rafmagns tenglum. Á svölum er saltvatnspottur frá Arctic Spas. Tegund: Artic Fox, signature, með innbyggðu hljóðkerfi og ljósum.
Frábært útsýni er af svölunum yfir Reykjanes og Snæfellsjökul. Þessi eign býður upp á fyrsta flokks aðstöðu fyrir þá sem leita að vönduðu og fallegu heimili, með nútímalegum innréttingum, glæsilegu útsýni og frábærri staðsetningu. Þetta er flott eign fyrir vandláta!Nánari upplýsingar veitir Guðný Þorsteins í síma 771-5211 eða á netfanginu gudnyth@remax.is. Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.