Fasteignaleitin
Skráð 13. júní 2025
Deila eign
Deila

Elliðabraut 18

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
113.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
96.900.000 kr.
Fermetraverð
856.764 kr./m2
Fasteignamat
77.750.000 kr.
Brunabótamat
83.870.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2020
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2507867
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Svalir
Tvær veröndir með palli
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Falleg og vönduð 4ra herbergja íbúð með tveimur timburveröndum  og sérmerktu stæði í bílageymslu.

-  Stæði í bílageymslu
-  3 svefnherbergi
-  Tvær timburverandir 
-  Loftræstikerfi með varmaskiptum og loftsíum


Allar nánari upplýsingar veita :
Tinna Bryde A.Lgf. í síma 660-5532 tinna@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 

Björt og vel skipulögð íbúð á jarðhæð í vönduðu lyftuhúsi við Elliðabraut 18 í Norðlingaholti, í göngufæri við Elliðaárdal og falleg útivistarsvæði. Eignin er skráð 113,1 fm, þar af íbúð 106,2 fm og 6,9 fm sérgeymsla  í sameign. Útgengi er út á tvær  timburverandir, aðrar í norður sem telja 20,8 fm og hinar suður og austurátt sem telja 27 fm, samtals 47,8 fm. Innfelld ljós eru í alrými og í hjónaherbergi. Sérstakt loftskiptikerfi (Airflow system) er í íbúðinni með stafrænni stýringu.  Hljóðvist og loftgæði eru mjög góð. 

Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 86.800.000 kr.

Íbúðin er parketlögð að öllu leyti fyrir utan votrými. Búið er að útbúa auka svefnherbergi, þannig að eignin nýtist sem 4ra herbergja íbúð í dag. Hægt er að breyta auðveldlega til baka og stækka stofuna.  

Nánari lýsing:
Forstofa: er mjög rúmgóð með fataskáp.
Eldhús: með Axis innréttingu, vönduðum tækjum frá AEG og innbyggðri uppþvottavél.
Stofa / borðstofa: björt og opin með útgengi út á tvær timburverandir , hægt er að nýta aðra veröndina  sem sérinngang inn í íbúðina. Gólfsíðir gluggar eru í stofu og rennihurð út á aðra veröndina.
Hjónaherbergi: með góðum fataskápum og glugga til austurs. 
Svefnherbergi II: með fataskápi og glugga til austurs. 
Svefnherbergi III: rúmgott herbergi með gólfsíðum glugga.  
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: innan baðherbergis. 
Sérgeymsla: í sameign og skráð 6.9 fm.
Bílastæði: sérmerkt stæði (merkt 61) í lokaðri bílageymslu með uppsettu rafhleðslukerfi.

Aðstaða í húsinu:
Sameign er snyrtileg með flísum í forstofu og teppi á stigagöngum. Lyfta er í stigagangi og rafmagnshurðaopnun. Í sameign er einnig hjóla- og vagnageymsla. Hellulögð stétt fyrir framan húsið með snjóbræðsluMyndavéladyrasími og loftræstikerfi með varmaskiptum og loftsíum.

Húsið byggt af MótX árið 2020 – álklætt og með samræmdu útliti.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í rólegu og vinsælu fjölskylduhverfi í Norðlingaholti í Reykjavík. Leikskóli og grunnskóli eru í göngufjarlægð, sem og verslun, þjónusta og frábærar göngu- og hjólaleiðir um Elliðaárdalinn, Heiðmörk og við Rauðavatn. Hverfið er þekkt fyrir náttúrufegurð og fjölskylduvænt umhverfi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/04/202151.550.000 kr.60.900.000 kr.113.1 m2538.461 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2507867
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B6
Númer eignar
1
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.320.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Básbryggja 19
Opið hús:14. júní kl 12:00-12:30
Skoða eignina Básbryggja 19
Básbryggja 19
110 Reykjavík
147.4 m2
Fjölbýlishús
64
671 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Skektuvogur 6
Bílastæði
Skoða eignina Skektuvogur 6
Skektuvogur 6
104 Reykjavík
123.5 m2
Fjölbýlishús
312
809 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Sogavegur 107
Bílskúr
Skoða eignina Sogavegur 107
Sogavegur 107
108 Reykjavík
146 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
614
664 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 208
Bílastæði
Vesturvin V1 íb 208
101 Reykjavík
94.2 m2
Fjölbýlishús
312
1030 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin