Davíðshagi 8, íbúð 301 - Björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á efstu hæð með glæsilegu útsýni - Stærð 91,2 m² Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.
Til sölu er falleg, björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á efstu hæð í austurenda fjölbýlishúss með lyftu á eftirsóttum stað í Hagahverfi. Íbúðin nýtur frábærrar staðsetningar með opnu útsýni, góðu aðgengi og stutt í alla helstu þjónustu.
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu og björtu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu á jarðhæð.
Nánari lýsing: Við inngang er snyrtileg forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Frá forstofu er komið inn á gang með parketi og góðu skápaplássi. Eldhús og stofa mynda rúmgott og bjart alrými þar sem stórir gluggar hleypa inn mikilli náttúrulegri birtu. Eldhúsið er fallega innréttað með góðu skápa- og skúffuplássi, flísum á milli skápa og innbyggðri uppþvottavél. Frá stofu er gengið út á góðar suðursvalir þar sem njóta má glæsilegs útsýnis og sólríkra stunda. Svefnherbergin eru þrjú talsins, öll með parketi á gólfum og fataskápum sem tryggja gott geymslupláss. Baðherbergið er snyrtilegt og vel hannað með flísum á gólfi og við votrými. Þar er hvít innrétting með plássi fyrir bæði þvottavél og þurrkara, handklæðaskápur, upphengt salerni og rúmgóður sturtuklefi með glerveggjum.
Annað: - Efsta hæð með fallegu útsýni - Björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð - Þrjú góð svefnherbergi - Suðursvalir - Gólfhiti í allri íbúðinni - Lyfta í húsinu - Mynddyrasími - Sérgeymsla á jarðhæð - Gott aðgengi í og úr hverfinu - Leikskóli í byggingu í næsta nágrenni
Húsið er staðsett nyrst í Hagahverfinu á vinsælum og fjölskylduvænum stað. Um er að ræða sérlega aðlaðandi eign sem hentar jafnt fjölskyldum sem þeim sem leita að þægilegri og nútímalegri búsetu í björtu umhverfi.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
26/04/2019
35.850.000 kr.
38.500.000 kr.
91.2 m2
422.149 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.