Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu: Nýbýlaveg 48b á Hvolsvelli.
Um er að ræða 4ra herbergja miðjuraðhús í byggingu á Hvolsvelli. Húsið er timburhús klætt með gæsagráu liggjandi bárujárnsklæðningu.
Húsið er samtals 86,4 fm samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands.
Samkvæmt teikningu skiptist húsið í forstofu, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu.
Húsið fellur undir reglur HMS um hlutdeildarlán.
Húsið er selt fullbúið að innan og utan.
Lóð verður hellulögð fyrir framan að hluta eða að ruslatunnuskýlum og hluti af lóð verður grófjöfnuð.
Búið er að greiða fyrir öll inntaksgjöldin. Gólfhiti í öllu húsinu ásamt stýringum. Hvítar innihurðar.
Skilveggir að framan og aftan hvítir að lit. Búið er að leggja ídráttarrör út fyrir sökkul fyrir heitan pott í garði.
Búið er að leggja ídráttarrör fyrir hleðslustöð sem kaupendinn sér um að kaupa og tengja fyrir húsið á bílaplanið sem er við endann á lengjunni.
Skilalýsing liggur fyrir á skrifstofu Gimli.
Afhending í sept 2024.
Verð 48.500.000-
Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til elin@gimli.is
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: með flísum og forstofuskáp.
Svefnherbergi 1#: með harðparketi og fataskáp.
Svefnherbergi 2#: með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús/borðstofa/stofa: eru í opnu rými með stórum glugga og svalahurð út í garð, L-laga innréttingu, helluborð, bakaraofni, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: með innréttingu með vaski og speglaskáp fyrir ofan, upphengt wc með flísalögðum klósettkassa, walk in sturtu með sturtugleri, sturtuhorn flísalagt, handklæðaofni og flísum á gólfi.
Þvottahús/geymsla: með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurkarra í vinnuhæð ásamt vaski, flísar á gólfi.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður innheimt 0,3% af brunabótamati.
Allar teikningar liggja fyrir.
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.