Fasteignaleitin
Skráð 10. júlí 2026

Vesturgata 35a

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
99.4 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
94.100.000 kr.
Brunabótamat
48.200.000 kr.
Mynd af Benedikt Ólafsson
Benedikt Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2001405
Landnúmer
100448
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi að sögn seljanda.
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Sagt í lagi að sögn seljanda.
Gluggar / Gler
Sagt í lagi að sögn eiganda
Þak
Sagt í lagi að sögn seljanda.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt upplýsingum seljanda liggja fyrir samþykktar teikningar frá Reykjavíkurborg vegna riss/þriðju hæðar.
Samkvæmt upplýsingum seljanda var frárennsli/skólp í götunni endurnýjað á árunum 2020–2021. Eignin er nýklædd að framan, Vesturgötumegin, og búið er að skipta um þakrennur öðrum megin, portmegin/baktil.
Á efri hæð hefur baðherbergi verið endurnýjað og ný eldhúsinnrétting sett upp. Samkvæmt upplýsingum seljanda voru báðar íbúðir málaðar árið 2025 og gluggar málaðir innan sem utan, að einum undanskildum. Rafmagn er að stórum hluta endurnýjað og alveg á efri hæð samkvæmt upplýsingum seljanda.
Gallar
Athygli er vakin á því að neðri hæð/kjallari er ósamþykkt sem íbúð og ekki með fullri lofthæð.
Vesturgata 35A, 101 Reykjavík

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Í einkasölu snyrtilegt og vel staðsett parhús á eignalóð við Vesturgötu 35A í 101 Reykjavík. Um er að ræða um 99,9 fm hús, byggt árið 1898, sem skiptist í tvær einingar á tveimur hæðum, báðar með sérinngangi.
Efri hæð er samþykkt íbúð og skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Neðri hæð/kjallari hefur verið nýtt sem sér eining, en er ósamþykkt sem íbúð og ekki með fullri lofthæð.

Samkvæmt upplýsingum seljanda liggja fyrir samþykktar teikningar frá Reykjavíkurborg vegna rishæðar/ þriðju hæðar. Samkvæmt byggingarlýsingu er gert ráð fyrir risi með kvisti, stiga sem tengir fyrstu hæð við rishæðina og svölum. Á rishæðinni er gert ráð fyrir eldhúskrók, stofu, geymslu, baðherbergi og svölum. Miðað við teikningar eru breytingarnar til þess fallnar að gera húsið einstaklega sjarmerandi, með auknum karakter, betra notagildi og skemmtilegum möguleikum til framtíðar (síðustu tvær myndirnar sýna hvernig útlitið verður með risi).
Að sögn seljanda er eigandi á 35b að fara byrja á stækkuninni hjá sér í sumar. 

Eignin Vesturgata 35A, 101 Reykjavík, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi lóðarréttindi. Fastanúmer eignar: 200-1405

Ásett verð: 83.800.000 kr.

*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*

"Smelltu hér til að sækja söluyfirlit"


Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala Sími: 661 7788 
Netfang: bo@stofnfasteignasala.is


Sölupunktar eignar
• Parhús á eignalóð í 101 Reykjavík
Tvær einingar með sérinngangi
Samþykktar teikningar vegna rishæðar/þriðju hæðar með kvisti, stiga og svölum samkvæmt upplýsingum seljanda
Leigutekjur samtals um 525.000 kr. á mánuði samkvæmt upplýsingum seljanda
Endurbætur á efri hæð, framhlið, rafmagni og lögnum samkvæmt upplýsingum seljanda

Eignin skiptist í
Efri hæð: anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Neðri hæð / kjallari: anddyri, aðalrými með stofu og eldhúsi, baðherbergi og eitt svefnherbergi.

Nánari lýsing
Efri hæð:
Forstofa / anddyri: Gengið er inn í forstofu með skápaplássi, glugga og þvottaaðstöðu.
Eldhús: Eldhús  með ljósri innréttingu, góðu vinnuplássi og tengingu inn að stofu/ borðrými. Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur verið sett upp nýleg eldhúsinnrétting ásamt nýjum vaski, blöndunartækjum og uppþvottavél.
Stofa / borðstofa: Stofa og borðstofa eru í björtu og notalegu rými með glugga. Rýmið nýtist vel sem setu- og borðrými.
Hjónaherbergi: Ágætis herbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Inn af stofu er svefnherbergi sem getur einnig nýst sem barnaherbergi eða vinnuherbergi.
Baðherbergi: Baðherbergið er með glugga, ljósri innréttingu, sturtu og er flísalagt í hólf og gólf. Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur baðherbergi verið endurnýjað, m.a. með sturtu, handlaug, blöndunartækjum, baðinnréttingu og flísum.

Neðri hæð / kjallari: 
Neðri hæðin hefur verið nýtt sem sér eining með sérinngangi. Gengið er niður flísalagðan stiga að inngangi hæðarinnar. Komið er inn í hol/anddyri með fatahengi og flísum á gólfi. Eldhús og stofa eru í opnu alrými þar sem er ljós eldhúsinnrétting og rými fyrir setuaðstöðu. Inn af alrými er herbergi með glugga og baðherbergi er flísalagt með baðkari/sturtuaðstöðu, innréttingu, salerni og tengi fyrir þvottavél. Neðri hæð/kjallari er ósamþykkt sem íbúð og ekki með fullri lofthæð.

Framkvæmdir / endurbætur
Samkvæmt upplýsingum seljanda var frárennsli/skólp í götunni endurnýjað á árunum 2020–2021. Eignin er nýklædd að framan, Vesturgötumegin, og búið er að skipta um þakrennur öðrum megin, portmegin/baktil.

Á efri hæð hefur baðherbergi verið endurnýjað og ný eldhúsinnrétting sett upp. Samkvæmt upplýsingum seljanda voru báðar íbúðir málaðar árið 2025 og gluggar málaðir innan sem utan, að einum undanskildum. Rafmagn er að stórum hluta endurnýjað og alveg á efri hæð samkvæmt upplýsingum seljanda.

Leigutekjur
Samkvæmt upplýsingum seljanda eru báðar einingar í útleigu og eru leigutekjur samtals um 525.000 kr. á mánuði.

Staðsetning
Vesturgata 35A er vel staðsett í hjarta 101 Reykjavík þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, þjónustu, skóla, leikskóla, menningu og útivist. Um er að ræða eftirsótta miðborgarstaðsetningu með nálægð við Granda, höfnina, miðbæinn og helstu þjónustu svæðisins. Hér sameinast sjarminn í gamla vesturbænum, nálægð við mannlíf og góð tenging við allt það helsta sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala hjá STOFN Fasteignasölu, í síma 661 7788 eða á bo@stofnfasteignasala.is.  STOFN leggur áherslu á faglega ráðgjöf, vandaða framsetningu og skýrt söluferli frá fyrstu kynningu til afhendingar.

Fyrirvari
Allar upplýsingar eru fengnar frá seljanda og opinberum gögnum og eru birtar með fyrirvara um villur og ónákvæmni. Kaupanda er bent á að kynna sér eignina og þau gögn sem henni tengjast, þar á meðal skráningu, samþykktir, teikningar og önnur gögn sem máli kunna að skipta.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/10/202156.400.000 kr.58.600.000 kr.99.4 m2589.537 kr.
18/07/200720.140.000 kr.25.900.000 kr.99.4 m2260.563 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 10
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 10
Valshlíð 10
102 Reykjavík
101.9 m2
Fjölbýlishús
211
1118 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0326
Laugaborg 0326 - Nyr afangi.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0326
Laugaborg 0326
105 Reykjavík
81.7 m2
Fjölbýlishús
312
1015 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Berjarimi 22
Opið hús:11. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Berjarimi 22
Berjarimi 22
112 Reykjavík
89.9 m2
Fjölbýlishús
312
778 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ólafsvegur 30
Skoða eignina Ólafsvegur 30
Ólafsvegur 30
625 Ólafsfjörður
114.3 m2
Fjölbýlishús
514
262 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin