Fasteignaleitin
Skráð 26. ágúst 2026

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia

Nýbygging • EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
133 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
66.700.000 kr.
Fermetraverð
501.504 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
103260826
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM – FLOTT RESORT* *MÖGULEIKI AÐ BÆTA VIÐ KJALLARA*


Vönduð og falleg einbýlishús á tveimur hæðum, staðsett á frábærum stað í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm. SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm. Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jógasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares.

Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is.  00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034  0034 615112869.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Góð stofa, borðstofa og eldhús í björtu og opnu rými. Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og baðherbergi. Stór verönd og sér garður með sundlaug framan við húsið. Aftan við það er einnig verönd og bílastæði á lóð. Úti og innirými eru vel tengd og mynda skemmtilega heild.

Efri hæð:
Tvö svefnherbergi með góðum fataskápum og eitt baðherbergi. Útgengt er úr öðru svefnherberginu á 19 fm svalir.

Möguleiki er að bæta við 76 fm kjallara gegn auka gjaldi. Kjallarann er hægt að nýta á ýmsa vegu, td. fyrir aukasvefnherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými.

Húsið er 114 fm og svalir 19 fm, samtals 133 fm. 

Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni. Dásamleg fjölskylduparadís.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK.
Verð frá 459.900 Evrum  (66.700.000 ISK) + skattur 10% og ca. 3% kostn. við kaupin. 


Afhending er 12 mánuðum eftir undirritun samnings.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni. Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld.  Að meðaltali  eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
103260826

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Hacienda del Alamo
Á einni hæð
SPÁNAREIGNIR - Hacienda del Alamo
Spánn - Costa Blanca
114 m2
Einbýlishús
423
477 þ.kr./m2
54.400.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 3 með bílskúr
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Selvogsbraut 3 með bílskúr
815 Þorlákshöfn
131.6 m2
Raðhús
312
622 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
Bílskúr
Á einni hæð
Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
815 Þorlákshöfn
113.5 m2
Raðhús
312
568 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Núpahraun 6, Afhendist fullbúið
Bílskúr
Á einni hæð
Núpahraun 6, Afhendist fullbúið
815 Þorlákshöfn
139 m2
Raðhús
413
575 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin