Fasteignaleitin
Opið hús:20. apríl kl 17:30-18:00
Skráð 16. apríl 2026

Grenigrund 18

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
133 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
751.128 kr./m2
Fasteignamat
82.450.000 kr.
Brunabótamat
69.280.000 kr.
Mynd af Unnur Svava Sigurðardóttir
Unnur Svava Sigurðardóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2061069
Landnúmer
114474
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Dren í kringum hús endurnýjað 2024
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler, móða í nokkrum glerjum, gluggi í aðalsvefnherbergi á austurhlið verður endurnýjaður af seljendum.
Þak
Gott. Þak endurnýjað 2022(Timbur eftir þörfum, þakpappi, þakjárn, þakkantur og þakrennur(suðurhlið))
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir, byggðar utan um eldri steyptar svalir, galvaniserað stál og klæðning
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
*Smiður mun skoða glugga hússins og tréverk bílskúra, í samráði við hann geta eigendur farið í endurbætur eftir þörfum: Gluggi í aðalsvefnherbergi á austurhlið íbúðar verður endurnýjaður af seljendum.
*Múrari mun skoða svalir og meta þörf á viðgerðum.
*Eigendur hússins munu hreinsa flögnun á húsinu og mála þegar tækifæri gefst í veðri.
**Sjá nánar í fundargerð húsfélags dags. 15.4.2026
Fasteignasalan TORG kynnir:
Vel skipulögð og björt fimm herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi ásamt bílskúr í grónu og rólegu hverfi í botnlangagötu í Kópavogi. Eignin í heild er skráð 133 fm, og skiptist í íbúð á hæð 109 fm og bílskúr 24 fm. 
Eignin skiptist í forstofu og stigahús, eldhús, þvottahús innaf eldhúsi, bjarta stofu og borðstofu með útgengi á suður svalir, baðherbergi, 4 svefnherbergi, kalt geymsluloft og bílskúr.
Nánari upplýsingar veita Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is, og Jóhanna Kristín, löggiltur fasteignasali, s. 837-8889 og johanna@fstorg.is


Nánari lýsing: 
Forstofa: Sérinngangur er í íbúðina, rafmagnshitun er í tröppum við inngang til að tryggja snjólaust aðgengi.
Hol: Fatahengi og parketlagður stigi upp í íbúðina. 
Herbergi I: Svefnherbergi inn af holi með glugga til norðurs. Parket á gólfi.
Eldhús: Ljós eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi og borðkrók. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Innaf eldhúsi. 
Stofa- og borðstofa: Stórir gluggar til suðurs og útgengi á svalir einnig til suðurs. Parket á gólfi.
Í svefnherbergisálmu eru 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting undir vaski og handklæðaofn. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Herbergi II: Parket á gólfi.
Herbergi III: Innréttað sem fataherbergi í dag. Parket á gólfi.
Herbergi IV: Parket á gólfi.
Bílskúr: Gönguhurð er á bílskúr og hann er einnig með rafmagni, heitu- og köldu vatni og niðurfalli í gólfi.
Geymsluloft: Íbúðinni fylgir helmingur háalofts hússins þar sem er gott geymslupláss. Rýmið er kalt.
Stór garður er við húsið ásamt sameiginlegu leiksvæði framan við húsið.
Góð bílastæði eru við húsið þar sem hver íbúð hefur sérmerkt stæði. 

Björt og vel skipulögð fimm herbergja íbúð á efri hæð í grónu og rólegu hverfi í botnlangagötu. Fjögur svefnherbergi. Svalir og garður til suðurs. Sérinngangur og bílskúr.
Nánari upplýsingar veita Unnur Svava, löggiltur fasteignasali, s. 623-8889 og unnur@fstorg.is, og Jóhanna Kristín, löggiltur fasteignasali, s. 837-8889 og johanna@fstorg.is


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1984
24 m2
Fasteignanúmer
2061069
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.130.000 kr.

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólabraut 3
Skoða eignina Skólabraut 3
Skólabraut 3
170 Seltjarnarnes
78 m2
Fjölbýlishús
211
896 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðamörk 13
Skoða eignina Breiðamörk 13
Breiðamörk 13
810 Hveragerði
93.4 m2
Fjölbýlishús
311
599 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina Fjólulundur 8
Bílskúr
Skoða eignina Fjólulundur 8
Fjólulundur 8
300 Akranes
168.1 m2
Parhús
523
689 þ.kr./m2
115.800.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 3 íb. 304
Baughamar 3 íb. 304
221 Hafnarfjörður
91.5 m2
Fjölbýlishús
32
847 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin