*FALLEG OG MIKIÐ ENDURNÝJUÐ ÍBÚÐ MEÐ SÓLPALLI*
*NÝLEGT JÁRN Á ÞAKI HÚSSINS*
*LAUS STRAX*
Lögheimili eignamiðlun kynnir fallega og mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð í nálægð við sjávarsíðuna í vesturbæ Reykjavíkur. Skv. fasteignaskrá er eignin samtals 57,3 fm. að meðtaldri sérgeymslu. Sólpallur. Mynddyrasími. Nýlegt járn er á þaki hússins. Frábær staðsetning og stutt í leikskóla, grunnskóla, háskóla, íþróttafélag, verslanir, sundlaug, þjónustu og skemmtilegar gönguleiðir við sjávarsíðuna.
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is
Anddyri: Með hvítum fataskáp.
Hol: Opið inn í stofu/borðstofu.
Stofa/borðstofa: Með útgengt á sólpall.
Eldhús: Falleg hvít innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, vifta yfir hellum og opið inn í borðstofu/stofu.
Herbergi: Með fataskáp.
Baðherbergi: Hvítur skápur undir vask, flísalögð sturta með glerskilrúmi, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél, upphengt salerni og flísar kringum sturtu og vask.
Gólfefni: Plastparket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem eru flísar.
Sérgeymsla: Staðsett á sömu hæð.
Þvottahús: Sameiginlegt á sömu hæð.
Vagna- og hjólageymsla: Sameiginleg á sömu hæð.
Annað: Skv. fasteignaskrá er íbúð 52,6 fm. og geymsla 4,7 fm., eða samtals 57,3 fm. Myndir í auglýsingu eru frá júní, 2023.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.