***Bókið einkaskoðun, Sigurður lgfs GSM 898-6106***
Fasteignasalan TORG kynnir: Stórglæsilegt einbýlishús við Tunguás 1 í Garðabæ. Glæsilegt útsýni yfir Bessastaði, og Snæfellsjökul!
Húsið er viðhaldslétt og staðsett á hornlóð með glæsilegt útsýni í átt að Bessastöðum og Snæfellsjökli. Garðurinn er fallega hannaður með lýsingu, timburverönd og heitum potti. Húsið er skráð samkvæmt Þjóðskrá samtals 250,6 fm. og er bílskúrinn 38,7 fm. Auk þess er 10 fm. geymsluskúr á lóðinni með rafmagni. Eignin er með fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi. Allar nánari uppl. veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.isHúsið skiptist í Efri hæð; Anddyri, stofa, eldhús og gestasnyrting, bílskúr og geymsla.
Neðri hæð; Hjónasvíta, sjónvarpshol, 3 rúmgóð barnaherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Nánari lýsing: Efri hæð: Forstofa: komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með eikarfataskáp. Á hægri hönd er gott fatahol sem er flísalagt og er innangengt í bílskúr frá fataholi sem er með góðu skápaplássi. Gólfhiti og ofnar eru í húsinu.
Gestasnyrting: Er með fallegri innréttingu granít á borði og upphengt salerni.
Eldhús: Eldhúsið er glæsilega hannað, vel útbúið með vönduðum tækjum. Nýlegur Miele ofn. Eldhúsinnréttingin er með góðu skápaplássi og ljósum stein á borðum. Gashelluborð með fallegum háfi. Löng og góð eldhúseyja með vaski, innfelldri uppþvottavél og góðu skúffuplássi. Gólfsíður gluggi með rennihurð, frönskum svölum með rimlum fyrir. Gólf er flísalagt með fallegum flísum, þeim sömu og í anddyri og á gestasnyrtingu. Fyrir 5 árum voru nýjar flísar settar á votrými og gólfhiti. Teikningar eru ekki í samræmi við samþykktar teikningar.
Stofa: Er björt með gegnheilu niðurlímdu parketi á gólfi sem var pússað fyrir 5 árum. Aukin lofthæð með innfelldri lýsingu. Stórir gluggar með miklu útsýni á Snæfellsjökul, Seltjarnarnes og víðar. Gasarinn og skenkur er glæsilegur og setur einstaklega fallegan svip á stofuna. Gólfsíðir gluggar og rennihurð með rimlum eins og í eldhúsi.
Neðri hæð: Gengið er niður parketlagðan stiga á neðri hæð hússins. Neðri hæðin skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, 2 baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Gott sjónvarpsherbergi sem er parketlagt og er útgengt út á verönd með heitum potti af svefnherbergisgangi. Innaf sjónvarpsherbergi er hjónaálma.
Hjónasvíta: Herbergið er parketlagt að mestu en flísar liggja mðfram gólfsíðum gluggavegg inn að baðherbergi, fataherbergi er inn af hjónaherberginu með góðu fatahengi, hillum og skúffum. Fallegt útsýni út í garð og heitan pott.d
Baðherbergi (með hjónasvítu) með sturtu, nýleg tæki, innréttingu og upphengt salerni. Blöndunartæki fyrir heita pottinn.
Barnaherbergi: Barnaherbergi eru andspænis hjónasvítu og eru alls þrjú. Stærðir herbergja eru 13 fm, 10,,1 fm og 9,5 fm og eru þau öll með fataskápum sem ná upp í loft. Parket á gólfum og með gluggum til norðurs. Endaherberbið sem er 13 fm er einnig með gólfsíðum rúmgóðum glugga til suðurs.
Baðherbergi. Glæsilegt baðherbergi sem var allt endurhannað og endurnýjað árið 2023. Glæsilegur marmarasteinn á borði. Frístandandi baðkar. Sturta með innfelldum blöndunartækjum. Gluggi er á baðherbergi. Falleg lýsing í loftum og innréttingu. Gólfhitinn endurnýjaður 2023.
Þvottahús með hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum. Vaskur og niðurfall. Geymsla innaf þvottahúsi.
Bílskúr: 38,7 fm. og er með rafstýrðri hurð og epoxy á gólfi sem var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Innaf honum er geymsla. Fataskápar og skóhillur eru í bílskúr.
Hiti í plani, zink skjólveggur er að framanverðu þar sem hægt er að njóta morgunsólarinnar. Húsið er viðhaldslétt með zinkþaki. Garðurinn er vel hannaður, afgirt timburverönd með heitum potti er á neðri pallinum.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar; Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali í GSM: 898-6106, netfang sigurdur@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 3.800.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.