Fasteignaleitin
Skráð 22. sept. 2026

Engjadalur 2

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
152 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.200.000 kr.
Fermetraverð
521.053 kr./m2
Brunabótamat
71.230.000 kr.
Byggt 2007
2. hæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
22883732
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Engjadal 2, 260. Reykjanesbæ.

Um er að ræða fallega fimm herbergja, 152 fm. íbúð með bílskúr á 2. hæð með sérinngangi í tveggja hæða fjölbýlishúsi.
Eignin skiptist í anddyri, hol, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, bílskúr og svalir.
Íbúð merkt 210.

Nánari lýsing:

Anddyri er með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Þar er útgengt út á svalir.
Eldhús hefur góða innréttingu með innbyggðum ísskáp, ofn og helluborði. Mikið skápapláss.
Svefnherbergin eru fjögur talsins öll með parket á gólfi. Hjónaherbergið er rúmgott með fataherbergi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, walk in sturta með sturtuskilrúmi úr gleri á eina hlið. góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara með góðri innréttingu með miklu skápaplássi.
Bílskúrinn er 31,4 fm og hefur flísar á gólfi.
Merkt Bílastæði.
 
Gólfhiti er í eigninni.
Granít í gluggakistum.
Eldhús og baðherbergi er nýlegt.
Sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
Dimmer er í ljósum í stofu og ljósunum niður við gólfin á herbergisgangi og inn á baðherbergi. Hæglokun er á öllum skápum í herbergjum og eldhúsinnréttingu ásamt baðherbergisinnréttingu og forstofu.
Mjög falleg og björt íbúð. Góð staðsetning, stutt í leik- og grunnskóla. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og stutt uppá Reykjanesbraut.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun Suðurnesja

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Pósthússtræti 3
Bílastæði
Hleðslustöð
Pósthússtræti 3
230 Reykjanesbær
101.6 m2
Fjölbýlishús
312
737 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg - Þaksvalir (504)
Hleðslustöð
Opið hús:23. sept. kl 17:00-17:30
b53 504.jpg
Laugaborg - Þaksvalir (504)
105 Reykjavík
141.5 m2
Fjölbýlishús
423
1307 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Dúfnahólar 6
Bílskúr
Opið hús:27. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Dúfnahólar 6
Dúfnahólar 6
111 Reykjavík
160.3 m2
Fjölbýlishús
514
521 þ.kr./m2
83.500.000 kr.
Skoða eignina Smyrlahraun 14
Opið hús:26. sept. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Smyrlahraun 14
Smyrlahraun 14
220 Hafnarfjörður
140.9 m2
Hæð
523
744 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin