Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu íbúð á miðhæð ásamt stúdíóíbúð í bílskúr í fasteigninni við Skagfirðingabraut 35, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Heildarstærð eignarinnar skv. HMS, ásamt sameign, er 152,8 fm. Íbúðin er skráð 114,7 fm. og bílskúr 38,1 fm.
Húsið var steypt árið 1951 og eru alls fjórar hæðir að meðtöldum kjallara og rishæð. Í húsinu eru þrjár íbúðir.
Leigulóð hússins alls er 365 fm.
Björt og vel skipulögð íbúð á frábærum stað.
Góð staðsetning. Stutt er í skóla, íþróttasvæði og íþróttahús, sundlaug, verslun o.fl.Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, fataherbergi, hol og forstofu.Sérinngangur um steyptar tröppur í flísalagða
forstofu. Forstofa er panelklædd.
Frá forstofu er gengið inn í parketlagt
hol og
gang.
Stofa er parketlögð og snýr í suðvestur.
Við stofu er parketlagt
herbergi með útgangi til vestursvala.
Í
eldhúsi eru parketflísar á gólfi og hvítmáluð innrétting. Helluborð, ofn og borðplata var endurnýjuð í lok árs 2020.
Baðherbergi er með dökkum flísum á gólfum, veggir klæddir með ljósum plötum, sturtuklefi og hvít innrétting.
Við
gang er
fataherbergi.
Við enda gangs eru tvö parketlögð
herbergi.
Innangengt er í
sameign í kjallara frá forstofu. Jafnframt er innangengt úr sameign í bílskúr. Í
sameign eru sérgeymslur fyrir hinar íbúðir hússins og
sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Ljósleiðari er í íbúð.
Stúdíóíbúð í bílskúr skiptist í herbergi, baðherbergi og alrými þar sem er eldhús og forstofa. Íbúð í bílskúr er ósamþykkt.Bílskúr var innréttaður sem
stúdíóíbúð sumarið 2020, þ.á.m. voru vatnslagnir og raflagnir endurnýjaðar.
Hvíttað eikarparket er á gólfum.
Hvítar innréttingar í eldhúsi og stofu. Borðplötur úr harðplasti frá Trésmiðjunni Borg.
Hvít rennihurð skilur að svefnherbergi og baðherbergi frá alrými. Nýr gluggi er í herbergi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og á hluta veggja. Sturta, hvít tæki, handklæðaofn og innrétting við vask. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. Engin túða er á baðherbergi og loftun um glugga.
Önnur útidyr er til suðurs inn í garð frá eldhúsinu. Einnig er eldvarnhurð í eldhúsi inn í sameign.
Sólpallur sunnan við húsið er sameiginlegur með öllu húsinu.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala