Fasteignaleitin
Opið hús:26. okt. kl 16:00-17:00
Skráð 22. okt. 2026

Holtsgata 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
103.2 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
774.225 kr./m2
Fasteignamat
78.800.000 kr.
Brunabótamat
49.650.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1957
3. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2001176
Landnúmer
100388
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt/Ekki vitað.
Raflagnir
Rafmagnskassi var endurnýjaður 2008 í sameign og dregið í. Ekki vitað með rafmagn í íbúð.
Frárennslislagnir
Drenlögn sunnanmegin endurnýjuð 2020 og dren og skólp myndað samhliða.
Gluggar / Gler
Yfirfarið og þéttaðir þar sem þurfti 2019. Nýlegir gluggar í hluta af húsinu, annað upprunalegt.
Þak
Þakrennur, niðurföll og þakjárn að hluta endurnýjað 2019. Þakjárn á húsi yfirfarið 2019 (háþrýstiþvottur, skipt um nagla, málað og settur snjóstoppari).
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suðursvalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 4ra herbergja íbúð á 3. hæð að Holtsgötu 19 í Vesturbæ Reykjavíkur. Útsýni er af sv-svölum þar sem sólar nýtur við frá morgni til kvölds. Göngufæri er í leik-, grunn- og háskóla. Einnig er stutt í sundlaug, íþróttasvæði KR, veitingastaði og verslanir úti á Granda og niðri í miðbæ.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, stofu, hol, tvö svefnherbergi, tvær stofur, eldhús, baðherbergi og geymslu. Þvottahús er í sameign. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 103,2 m2.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af teppalögðum stigagangi. Innan íbúðar er parketlagt hol sem jafnframt er miðjurými íbúðar. Nýlegir hvítir fataskápar ná upp í loft. 
Stofa er parketlögð og milli hennar og borðstofu er tvöföld glerhurð. Út frá stofu er gengið út á sv-svalir með útsýni yfir til Bláfjalla og yfir vesturbæinn að hluta.
Borðstofa er nýtt í dag sem barnaherbergi. Parket á gólfi.
Eldhús er einstaklega stórt og með góðu gólfplássi fyrir eldhúsborð og stóla. Innrétting nær upp í loft og er að hluta til upprunaleg, en hún yfirfarin og sett aukin þægindi inn í skápa og skúffur. Viðarborðplötur og milli efri og neðri skápa eru hvítar flísar. Innbyggð uppþvottavél fylgir, helluborð og bakaraofn. Svart-hvíur dúkur á gólfi og upp sökkla.
Herbergi I er mjög stórt og bæði með innbyggðum eldri fataskápum sem og nýlegum hvítum fataskáp þar sem haganlega er komið fyrir þvottavél og þurrkara. Búið er að leiða tengi úr baðherbergi í gegnum vegg á milli baðherbergis og herbergis. Parket á gólfi.
Herbergi II er með tvöföldum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Salerni, hvít skápaeining með handlaug, veggfestur hvítur skápur og baðkar með sturtuhengi. Veggflísar eru málaðar, ljósar gólfflísar.
Geymsla er sér í sameign á jarðhæð, birt stærð 5,3 m2. Merkt 00-04.
Þvottahús og þurrkherbergi eru í sameign á jarðhæð.
Bílastæði eru úti í götu framan við hús og eru gjaldfrjáls.
Hlutfallstala íbúðar í heildarhúsi og lóð er 12,22 %

Framkæmdir sem hafa átt sér stað síðustu ár samkvæmt eigendum og húsfélagi:

- Gólf brotið upp og flotað í forstofu til að jafna íbúðina (gólf var mishátt).
- Nýlegt viðarparket og gólflistar.
- Nýleg rafmagnstafla fyrir íbúð með nýjum öryggjum (er inni í skáp í forstofu).
- Nýlegir tenglar og rofar á allri íbúð.
- Skipt um plötu við baðkar. 
- Allir hurðakarmar lakkaðir fyrir nokkrum árum.
- Smíðaður þvottaskápur inn í svefnherbergi þar sem búið er að setja tengi fyrir þvottavél og þurrkara (hægt að nýta sem venjulegan fataskáp).
- Gamall skápur rifinn niður í forstofu og nýr skápur smíðaður.
- Ofn í borðstofu var réttur af og lagaður (var skakkur á veggnum).

Endurbætur á sameign: Að sögn húsfélags var gerð ástandsskýrsla árið 2018. Árið 2019 voru framkvæmdir á múr, gluggum og þaki. Drenað var sunnanmegin í garði árið 2020 og dren og skólp þá myndað. Dyrasími endurnýjaður 2020 og útidyrahurð pússuð upp. Rafmagnskassi og rafmagn í sameign endurnýjað 2008.

Leikskólinn Vesturborg
Vesturbæjarskóli (1.-7. bekkur)
Sundlaug Vesturbæjar
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
Kaffihús Vesturbæjar

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/05/202466.250.000 kr.75.500.000 kr.103.2 m2731.589 kr.Já
03/08/202147.100.000 kr.58.000.000 kr.103.2 m2562.015 kr.Já
06/11/201843.500.000 kr.47.800.000 kr.103.2 m2463.178 kr.Já
18/07/201221.850.000 kr.26.000.000 kr.103.2 m2251.937 kr.Nei
17/03/200820.310.000 kr.27.000.000 kr.103.2 m2261.627 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engjateigur 17
Efsta hæð
Skoða eignina Engjateigur 17
Engjateigur 17
105 Reykjavík
109,9 m2
Fjölbýlishús
312
773 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 2
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 2
Valshlíð 2
102 Reykjavík
103,9 m2
Fjölbýlishús
413
1019 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 13
3D Sýn
Skoða eignina Tryggvagata 13
Tryggvagata 13
101 Reykjavík
99,6 m2
Fjölbýlishús
211
1053 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Vitastígur 8A
Bílskúr
Stofa og borðstofa eru samliggjandi
Skoða eignina Vitastígur 8A
Vitastígur 8A
101 Reykjavík
99 m2
Fjölbýlishús
412
856 þ.kr./m2
84.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin