Fasteignaleitin
Skráð 3. mars 2026

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
82 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
36.900.000 kr.
Fermetraverð
450.000 kr./m2
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
101030326
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *DRAUMAEIGN GOLFARANS* *NÝJAR ÍBÚÐIR Í LYFTUHÚSNÆÐI* *STÆÐI Í BÍLAKJALLARA OG GEYMSLA* *FRÁBÆR STAÐSETNING Í GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARÐGAÐUR*

Nýjar og vandaðar íbúðir á besta stað í lyftuhúsi í Villamartin golfparadísarsvæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 2 svefnherbergi með fataskápum og 2 baðherbergi. Rúmgott eldhús opið við stofu, svalir frá stofu og stór garður fylgir íbúðum á jarðhæð. Glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður. Stæði í bílakjallara og geymsla, ásamt sér hjólageymslu.

Frá forstofu er gengið inn í bjart opið rými með eldhúsi sem er opið við stofu. Gengið er út á svalir, og á jarðhæð er gengið út í stóran 80 fm sérgarð. Eldhús afhendist fullbúið með öllum tækjum. Svefnherbergin eru tvö, með fataskápum og annað þeirra með sér baðherbergi. Bæði baðherbergin eru flísalögð, með góðri innréttingu og sturtu. Eigninni fylgir sér geymsla, stæði í bílageymslu, og hjólageymsla sem einnig er hægt að nýta fyrir mótorhjól. Miðstýrt innfelt loftræstikerfi er innan íbúðar sem hægt er að nota bæði til að kæla og hita.

Um er að ræða vel skipulagðar nýjar eignir í frábærlega staðsettri nýbyggingu, einstakt tækifæri til að eignast íbúð í hjarta Orihuela Costa í göngufæri við verslanir, veitingastaði og golfvelli. Eignirnar eru til afhendingar í september 2026.

Allar upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. Sími 893 2495


Stutt í La Fuente verslunar og veitingahúsakjarnann, Mercadona matvöruverslunina og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlegi einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, útsýni, air con, bílastæði, verönd, sér garður, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101030326
Fasteignanúmer
101030326

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sólvallagata 37
Opið hús:23. mars kl 17:15-17:45
Skoða eignina Sólvallagata 37
Sólvallagata 37
101 Reykjavík
68.2 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðargerði 5
Opið hús:25. mars kl 17:15-17:45
Skoða eignina Heiðargerði 5
Heiðargerði 5
190 Vogar
78 m2
Fjölbýlishús
312
640 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Reyrengi 2
Skoða eignina Reyrengi 2
Reyrengi 2
112 Reykjavík
97.3 m2
Fjölbýlishús
413
801 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Þverholt 9
Skoða eignina Þverholt 9
Þverholt 9
270 Mosfellsbær
155.1 m2
Fjölbýlishús
715
644 þ.kr./m2
99.950.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin