Gimli fasteignasala kynnir: Hafnarbraut 12B, 200 Kópavogur, sem er
einstaklega falleg þriggja herbergja íbúð á fjórðu og efstu hæð í stigahúsinu,
ásamt stæði í bílakjallara. Íbúðin er
94,7 fm að meðtalinni 11 fm geymslu í kjallara. Íbúðin er
eina íbúðin á hæðinni og fyrir framan íbúðina er því
mikið pláss á stigapalli. Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með walk-in sturtu ásamt innréttingu og tengingu fyrir þvottavél og þurrkara. Þá mynda eldhús og stofa fallegt alrými þar sem er eyja með eldavél. Úr stofu er gengt út á svalir. Stæði í lokuðum bílakjallara er næst inngangi frá stigagangi og geymslan er þar við hliðina á.
Fyrirhgað fasteignamat næsta árs er kr. 80.150.000
Eignin Hafnarbraut 12B er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-0825, birt stærð 94.7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 04-09, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.isSmellið hér til að sjá myndband af eigninni.NÁNARI LÝSING:Gengið er inn í íbúðina frá stórum stigapalli en íbúðin er eina íbúðin á fjórðu/efstu hæðinni, í stigahúsinu. Komið er inn í rúmgott
anddyri með hvítum fataskáp og fatahengi. Úr anddyri er
baðherbergið á vinstri hönd. Það er með flísum á gólfi og í kringum walk-in sturtu, sem er með glerþili. Upphengt salerni, handklæðaofn, hvít innrétting undir vaski og stór speglaskápur þar fyrir ofan. Þá er rými fyrir þvottavél og þurrkara og skápur þar fyrir ofan.
Eldhús og stofa mynda fallegt opið rými með gluggum á þrjá vegu og útgengi út á svalir. Eldhús-innréttingin er hvít og er á einum vegg, í kringum opnanlegan glugga yfir vaski. Eyja með helluborði og skúffum og háfur fyrir ofan.
Hjónaherbergið er rúmgott með hvítum fataskápum.
Svefnherbergið er með hillum á vegg.
Svalirnar eru 8,2 fm með rimlahandriði og snúa út að Vesturvör.
Geymslan er innaf bílakjallara, og er hún 11 fm með mikilli lofthæð. Hún er staðsett rétt við hiðina á bílastæðinu.
Bílastæðið er í lokuðum bílakjallara og er við hliðina á inngangi í stigagang.
Vagna- og hjólageymsla er í sameign.
Harðparket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema á gólfi baðherbergis, en þar eru ljósgráar flísar.
Íbúðin er einstaklega vel skipulögð og björt, með gluggum á þrjá vegu í stóru opnu rými þar sem er eldhús og stofa.
Mjög stór stigapallur er fyrir framan íbúðina og gefur það ýmsa möguleika enda er engin önnur íbúð á hæðinni.
Íbúðin er staðsett vestast á Kársnesinu, sem er rótgróið og vinsælt hverfi, í mikilli uppbyggingu. Nú eru hafnar framkvæmdir við Fossvogsbrúna, sem verður frábær tenging við Miðbæ Reykjavíkur. Nýr grunnskóli, Kársnesskóli, verður tekinn í notkun í haust en sambyggður honum verður nýr leikskóli. Örstutt er í Sky Lagoon og þá er ein besta sundlaug landsins, Kópavogslaug, í göngufjarlægð. Þá er ýmis þjónusta komin í hverfið eins og t.d. Brikk bakarí og veitingahúsið Brasserie Kársnes.
Niðurlag:Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala