Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Ástjörn 2C. Mjög snyrtilegt og gott þriggja herbergja endaraðhús með bílskúr við Ástjörn, á horni Aðaltjarnar og Langholts. Vel byggt gott hús, klætt með viðhaldsléttri klæðningu. Húsið ber þess augljós merki að hafa fengið góða umgengni og viðhald. Hellulögð rúmgóð innkeyrsla með snjóbræðslulögnum framan við bílskúr og að sorptunnu.
Húsið sem var byggt árið 2000 er alls 128,8 fm þ.a. bílskúr 19,8 fm.
Bókið skoðun hjá fasteignasala.
Innra skipulag: Flísalögð forstofa með fataskáp. Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými Hurð út á sólpall. Snyrtileg eikareldhúsinnrétting. Allar innréttingar og skápar er íslensk sérsmíði og mjög vel umgengið en upprunalegt. Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi með fataskáp. Hol framan við herbergin, nýtist vel sem vinnurými. Á gólfum er eikarparket. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Innrétting, sturta og baðkar. Flísalagt þvottahús með innréttingu, geymsla þar inn af. Innangengt í flísalagðan bílskúr, hurðaopnari og milliloft. Eignin er öll hin snyrtilegasta.
Sólpallur er með skjólveggjum og góður og snyrtilegur lóðarfrágangur.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali, snorri@husfasteign.is s. 8648090
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.