Falleg jörð í Hrunamannahreppi með byggingarmöguleikum, land til fjölbreyttrar nýtingar og eignarréttindum í Miðfelli.- Um 4,4 ha afmarkað land
- Möguleikar til íbúðarbyggingar á landinu
- Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni við lóðarmörk
- Land sem hentar meðal annars fyrir hesta og beit
- Eignarhlutir í óskiptu landi í Miðfelli ásamt veiðirétti í vatni á fjallinu
Miðbær er skráð lögbýli í Hrunamannahreppi með fasteignanúmerið F2203592 og landeignanúmerið L166801. Samkvæmt þinglýsingargögnum er um eignarlóð að ræða.
Nánari upplýsingar veita:Andrea Ósk Harradóttir astmf. í S:
785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
Nánari lýsing jarðarAfmarkað land Miðbæjar er um 4,4 ha. Landið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og hentar hluti þess meðal annars vel fyrir hesta og beit.
Búið er að teikna upp fyrirhugaða íbúðarhúsalóð innan landsins en hún hefur ekki verið formlega stofnuð. Staðsetning framtíðaríbúðarhúss er þó ekki bundin við þá staðsetningu sem þegar hefur verið teiknuð og því er mögulegt að vinna með aðra staðsetningu innan landsins, að fengnum tilskildum samþykktum og leyfum. Undir Miðfelli er lítil og falleg íbúðarbyggð þar sem eingöngu er um íbúðarhúsnæði að ræða.
Heitt vatn, kalt vatn og rafmagn eru við lóðarmörk og hafa tengigjöld verið greidd samkvæmt upplýsingum seljenda. Engar byggingar standa á Miðbæ í dag.
Miðbæ fylgja jafnframt eignarréttindi í óskiptu landi í Miðfelli. Samkvæmt upplýsingum seljenda fylgir 50% eignarhlutur í óskiptu landi framan í Miðfelli og 25% eignarhlutur í óskiptu landi uppi á Miðfelli. Eigninni fylgir einnig veiðiréttur í vatni á Miðfelli samkvæmt upplýsingum seljenda.
Í þinglýsingargögnum kemur fram að Miðbær sé lögbýli og þar er jafnframt þinglýst merkjalýsing vegna Miðbæjar, landeignanúmer L166801.
Miðbær býður upp á áhugavert tækifæri fyrir þá sem vilja byggja sér heimili í sveitaumhverfi, með land til fjölbreyttrar nýtingar og sérstökum eignarréttindum í Miðfelli.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.