Fasteignaleitin
Opið hús:21. apríl kl 17:30-18:00
Skráð 16. apríl 2026

Fellsmúli 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
106.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
700.655 kr./m2
Fasteignamat
74.750.000 kr.
Brunabótamat
50.800.000 kr.
SS
Sunna Sigurjónsdóttir
Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2015498
Landnúmer
103829
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar innan íbúðar*
Raflagnir
Endurnýjað innan íbúðar*
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar innan íbúðar*
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir fyrir ca 15 árum*
Þak
Endurnýjað að hluta fyrir ca 23 árum*
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu: Fallega og bjarta 4ra herbergja íbúð í Fellsmúla 9, 108 Reykjavík. Eignin er samtals 106,9 fm, endaíbúð á þriðju hæð og telur forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottarými innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Tvennar svalir, til suðurs og austurs, sér geymsla í sameign, sameiginleg þvottaaðstaða í sameign ásamt og hjóla-og vagnageymslu. 

Nánari upplýsingar veitir Sunna Sigurjónsdóttir Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 845-0517, tölvupóstur sunna@fstorg.is.

Stutt í alla helstu þjónustu, Kringluna, skóla og leikskóla. Virkilega björt og falleg eign, með miklu útsýni, sem vert er að skoða.

Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa:
Sérsmíðaður fataskápur sem nær upp í loft.
Eldhús: Sérsmíðaðar innréttingar, innbygð uppþvottavél og ísskápur. Bakaraofn í vinnuhæð og spanhelluborð. Eldhúsborð og eldhúsbekkur. Gegnheilt viðarparket á gólfi. Fallegt útsýni til austurs.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóð og björt stofa. Gegnheilt viðarparket á gólfi. Útgengt á svalir til suðurs, mikið útsýni. 
Svefnherbergisgangur: Skápur með þvottaaðstöðu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gegnheilt viðarparket á gólfi. 
Herbergi I: Rúmgott með fataskápum sem ná upp í loft. Gegnheilt viðarparket á gólfi. Útsýni til norðurs.
Herbergi II: Gegnheilt viðarparket á gólfi og fataskápum sem nær upp í loft.. Útsýni til norðurs.
Herbergi II: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum sem ná upp í loft. Gegnheilt viðarparket á gólfi. Útgengt á svalir til austurs, mikið útsýni.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu og dökk viðarlituð innréttng ásamt speglaskápi. Gluggi með opnanlegu fagi. 
Geymsla: Sér geymsla í sameign, 4,3 fm.
Sameign: Er öll sú snyrtilegasta. Nýtt teppi á stigagangi og stigagangur nýmálaður. Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla, útgengt úr húsi úr hjólageymslu. Sameiginlegt þvottarými og þurrkherbergi. 

Endurbætur sem hafa átt sér stað á síðustu árum að sögn formann húsfélags og seljenda. 
*Skipt var um teppi á stigagangi og veggir málaðir árið 2026.
*Heitavatnslagnir og frárennslilagnir innan íbúðar endurnýjaðar fyrir 2 árum (það eru sér heitavatnslagnir í hverri íbúð og sér mælar fyrir hverja íbúð).
*Rafmagn innan íbúðar endurnýjað 2020.
*Klæðning var sett á suðurhlíð hússins og göflum, gert var við sprungur og norðurhlið hússins máluð fyrir ca 6 árum.
*Skipt um eldhúsinnréttingu árið 2020 ásamt eldhústækjum, þ.e. bakaraofn, eldavél, uppþvottavél og ísskápur. 
*Skipt um fronta á öllum skápum innan íbúðar 2020 nema forstofu en þar var settur nýr skápur.
*Nýjar hurðir innan íbúðar árið 2020.
*Skápur með þvottaðstöðu bætt við árið 2020 og er ekki á upprunalegum teikningum.
*Svalahandrið voru endurnýjuð fyrir ca 6 árum.
* Rafmagnstafla endurnýjuð fyrir ca 6 árum. 
*Skipt var um gluggaumgjarðir og glugga fyrir 10-15 árum.
*Þakið var endurnýjað að hluta fyrir ca. 23 árum, þ.e. skipt um járn og þakrennur.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
17/01/202358.900.000 kr.16.000.000 kr.106.9 m2149.672 kr.Nei
08/10/200718.770.000 kr.23.000.000 kr.106.9 m2215.154 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 2 (306)
Bílastæði
Opið hús:18. apríl kl 13:30-14:00
Vetrarbraut 2 (306)
210 Garðabær
74.1 m2
Fjölbýlishús
312
1078 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 15
Opið hús:21. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Mávahlíð 15
Mávahlíð 15
105 Reykjavík
93.8 m2
Fjölbýlishús
312
926 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Háberg 5
Skoða eignina Háberg 5
Háberg 5
111 Reykjavík
74.6 m2
Fjölbýlishús
1
709 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Skoða eignina Mávatjörn 12
Bílskúr
Opið hús:19. apríl kl 12:00-12:30
Skoða eignina Mávatjörn 12
Mávatjörn 12
260 Reykjanesbær
156.4 m2
Fjölbýlishús
43
690 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin