Guðný Ösp lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir fallega þriggja herbergja hæð við Tómasarhaga 16, íbúð 001.
Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 83,1fm íbúð með sér inngang á vinsælum stað í Vesturbænum.
Eign skiptist í: forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sameiginlegt þvottahús á hæð, sérgeymslu og hlutdeild í sameign.
Nánari lýsing:
Forstofa: með flísum á gólfi.
Á gangi er parket.
Eldhús er með nýlegri innréttingu, flísum á milli efri og neðri skápa, helluborði, gufugleypi, bakaraofni og ágætum borðkrók.
Stofa er rúmgóð með gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi.
Svefnherbergi eru tvö, bæði vel rúmgóð með fataskápum og parket á gólfum.
Baðherbergi er nýlega standsett, flísar á gólfi og veggjum að hluta, sturtuaðstaða er stúkuð af með glerskilrúmi, vegghengt salerni, ágæt vaska innrétting og handklæðaofn.
Sérgeymsla er í kjallara skráð 3,2 m2.
Sameiginlegt þvottahús við hlið íbúðar, með plássi fyrir þvottavél og þurkara.
Þægileg aðkoma er að eigninni, einungis gengið niður þrjár tröppur að útidyrum.
Eignin var mikið endurnýjuð fyrir 2-3 árum. Baðherbergi endurnýjað, gólfefni í íbúð endurnýjuð ofnalagnir og neysluvatnslagnir endurnýjaðar, ný eldhús innrétting, pottofnar yfirfarnir og málaðir, rafmagn endurnýjað að hluta og fl.
Sérlega falleg eign á gróinni óskiptri lóð, örstutt í skóla, verslun og þjónustu og kaffi Vest svo eitthvað sé nefnt.
Allar nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.