Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnir til leigu gott húsnæði á 2. hæð í framhúsi hússins nr. 17 við Hamrahlíð, Reykjavík, hús Blindrafélagsins. Stærð hins leigða er ca. 300 fm.
Lýsing. Húsnæðið er á 2. hæð í framhúsinu. Gott aðgengi um rúmgóða forstofu með tveimur lyftum. Auk þess er inngangur inn í húsnæðið á suðurgafli hússins. Húsnæðið er bjart með góðum gluggum og niðurteknum loftum. Í húsnæðinu var rekin augnlæknaþjónusta. Húsnæðið afhendist í núverandi ástandi eða innréttað eftir þörfum leigutaka á kostnað leigusala.
Blindrafélagið er með starfsemi sína í húsinu auk stoðþjónustu. Auk þess eru íbúðir í húsinu.
Húsið er í sérlega góðu ástandi og mjög mikið endurnýjað. Æskilegt er að leigutaki sé með starfsemi sem styður við markmið Blindrafélagsin og þá þjónustu sem er nú til staðar í húsinu.
Leiguverð tekur mið af afhendingarástandi. Um er að ræða langtímaleigusamning við traustan leigutaka.
Húseigandi mun fjölga bílastæðum á lóðinni á árinu 2026.
Húsið er þekkt hús og sérlega vel staðsett með góðri aðkomu.
Áhugasamir hafi samband við Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasala í símum 533-4040 eða 896-4013 varðandi skoðun. dan@kjoreign.is eða kjoreign@kjoreign.is