Trausti fasteignasala kynnir bjarta íbúð á tveimur hæðum við Borgarbraut í Borgarbyggð. Góður pallur bakatil við inngang eignar. Stutt í verslanir, sund og íþróttamiðstöð Borgarness.
Aukaíbúð er á neðstu hæð hússins í eigu sama aðila sem einnig er á sölu. Möguleiki er því að kaupa allt húsið. Tilvalið fyrir stóra fjölskyldu eða með útleigumöguleika á neðstu hæð.
https://fasteignir.visir.is/property/656696
Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 142,0 fm.
Nánari upplýsingar hjá Sólveigu í síma 869-4879 eða á solveig@trausti.is og Kristján í síma 867-3040 eða á kristjan@trausti.is
Nánar um eignina:
Neðri hæð:Anddyri með flísum á gólfi. Viðarstigi sem gengur upp á efri hæð.
Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt sameiginlegt rými.
Eldhús með eldri kirsjuberjaviðar innréttingu. Helluborð og vifta. Bakaraofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél. Flísar milli efri og neðri skápa. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Baðherbergi með gluggum á tveimur hliðum. Snyrtileg innrétting. Baðkar með sturtugleri. Tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og baðkari.
Efri hæð:Hjónaherbergi með góðum fataskáp og innbyggðum skáp. Parket á gólfi.
Tvö
barnaherbergi með parketi á gólfi.
Hol sem í dag nýtist sem sjónvarpsherbergi. Innbyggður skápur/geymsla.
Stór og góður
bílskúr sem þarfnast viðhalds. Ný tafla og ofnalagnir. Vatnsinntak er í bílskúr.
Viðhald sem farið hefur verið í undanfarin ár:Árið 2023 var skipt um ofna í stofu og minna barnaherbergi.
Árið 2022 var minna barnaherbergi einangrað og klætt að innan.
Árið 2021 var húsið málað að utan.
Árið 2021 var stétt lögð fyrir framan og pallur smíðaður.
Árið 2019/2020 var húsið múrað og drenað.
Búið að yfirfara ofnakerfi.
Árið 2021 var skipt um stofu glugga sem vísa að Borgarbraut. Skipt var um gler í öðrum stofu gluggum ásamt því að skipt var um ofna sömu megin.
Árið 2021 var skipt um glugga og ofna í hjónaherbergi.
Ný aðalrafmagnstafla fyrir allt húsið er í bílskúr. Ofnalagnir yfirfarðar og skipt um þrýstijafnara.
Búið að leggja þriggja fasa rafmagn í bílskúr (þó ekki búið að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíla)
Árið 2000 voru raflagnir endurnýjaðar að hluta.
Athugasemdir við skoðun:Vatnslagnir eru gamlar.
Gluggi inn á baði við baðkar er kominn á tíma.
Lítill vatnsþrýstingur inn á baði.
Móða í gleri í holi efri hæðar og öðru barnaherbergi.
Kominn tími á hurð og glugga bílskúrs.
Lélegt þakjárn á bílskúr. Lekur inn í slagviðrum. lekaummerki.
Um er að ræða bjarta og fallega eign miðsvæðis í Borgarnesi. Stutt í verslanir og aðra þjónustu.Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sólveig Regína Biard löggiltur fasteignasali, í síma 869-4879 eða á netfanginu solveig@trausti.is og Kristján í síma 867-3040 eða á kristjan@trausti.is