Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Vel skipulögð, mikið endurnýjuð og huggleg 61,1 fm tveggja herbergja íbúð á 3. hæð við Eiðistorg 3, 170 Seltjarnarnesi, þar af er sér geymsla í kjallara 8,6 fm.
Íbúðin var öll endurnýjuð fyrir nokkrum árum að innan með smekklegum innréttingum og fallegu gólfefni. Íbúðin er öll nýlega máluð.
Flott íbúð á eftirsóttum stað með snyrtlega og góða sameign. Íbúðin er laus til afhendingar
Húsið fór í gegnum miklar endurbætur að utan á árunum 2018-2020. Þakjárn endurnýjað, múrviðgerðir, húsið málað og skipt um glugga/tréverk hjá þeim sem óskuðu eftir því.
Nánari lýsing: Gengið er inn í alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Parket á gólfi. Eldhús innrétting á einum vegg og með áfasta eyju við vegg. Gott skápa, vinnu- og borðpláss. Innbyggður ísskápur og inbyggð uppþvottavél er í eldhúsinnréttingu. Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og upp meðfram upphengdu salerni og sér sturtu. Hvítar flísar á vegg við baðinnréttingu og spegill. Aðstaða og tengi fyrir þvottavél er inn á baðherbergi. Svefnherbergið er rúmgott og bjart með nýlegum fataskápum í enda þess og parket á gólfi. Út frá stofu, alrými eru suður- vestur svalir. Sér geymsla í kjallara hússins er 8,6 fm.
Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isVegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.