Fasteignaleitin
Skráð 26. ágúst 2026

Höfðabraut 10

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
106.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
655.108 kr./m2
Brunabótamat
72.600.000 kr.
Byggt 2008
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
23161444
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Margir inngangar

Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og LANDMARK fasteignamiðlun kynna til sölu:

Rúmgóður og vel skipulagður sumarbústaður á frábærum stað við Höfðabraut í Vaðnesi, Grímsnesi. Bústaðurinn er umkringdur fallegri náttúru og er í sumarhúsabyggð sem er lokuð með öryggishliði. Um klst. akstur frá Reykjavík og um 15 mín. frá Selfossi. Í nálægu umhverfi eru tveir golfvellir í Öndverðarnesi og Kiðjabergi, sundlaug og margar af helstu náttúruperlum Suðurlands.

Höfðabraut 10 er skráð í heild 106,7fm. - þar af 81,8fm. sumarbústaður og 24,9fm. gestahús. Húsin eru timburhús, full einangruð sem heilsárshús, byggð á steyptum sökklum og með steyptri botnplötu. Eignin er á 7.745fm. eignarlandi.

Aðalhúsið skiptist í forstofu, eldhús með eyju, rúmgóða stofu/borðstofu þaðan sem er útgengt út á verönd, 3 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu sem er einnig nýtt sem þvottahús. Gestahúsið skiptist í alrými, baðherbergi og geymslu. Húsin eru hituð með gólfhita.
Bæði húsin eru með steypta plötu utan húshlutanna sem gefa möguleika á því að stækka húsin. Stór verönd og á milli húshlutanna er samfelldur skjólveggur og heitur pottur. Góð aðkoma er að húsinu og stórt bílastæði er aftan við húsið.  

Húsið er laust til afhendingar, húsgögn og innbú getur fylgt með eftir nánara samkomulagi.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Jón Óskar Karlsson
, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða jonoskar@landmark.is

 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturbakki 5 með góðu millilofti
Hleðslustöð
Vesturbakki 5 með góðu millilofti
815 Þorlákshöfn
98.1 m2
Atvinnuhúsn.
1
318 þ.kr./m2
31.200.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
Bílskúr
Á einni hæð
Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
815 Þorlákshöfn
113.5 m2
Raðhús
312
568 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0305
Efsta hæð
Hleðslustöð
Sambyggð 20, íbúð 0305
815 Þorlákshöfn
105.9 m2
Fjölbýlishús
413
679 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0301
Efsta hæð
Hleðslustöð
Sambyggð 20, íbúð 0301
815 Þorlákshöfn
105.9 m2
Fjölbýlishús
413
679 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin